Miskunnsamur Samverji skilar týndu bardagasverði Bjarki Ármannsson skrifar 16. júlí 2014 10:26 Benedikt mun næst nota sverðið þegar æfingar hjá víkingahópnum Rimmugýgi hefjast á ný. Mynd/Rimmugýgur/Benedikt Kristjánsson
Sérhannað bardagasverð sem tekið var úr bíl fyrir framan Nóatún í Hamraborg fyrir tveimur vikum hefur ratað aftur til eiganda síns, Benedikts Kristjánssonar. Í frétt Vísis þann 3. júlí biðlaði Benedikt til þjófsins eða þjófanna að skila sverðinu, enda væri það bæði verðmætt og hefði mikið tilfinningagildi. „Það var ekki þjófurinn sem skilaði þessu, en það var þó miskunnsamur Samverji sem náði því og kom með það til mín,“ segir Benedikt. „Einhvern veginn náði viðkomandi sverðinu, hringdi í mig og sagði að ég mætti koma og ná í það.“ Benedikt segist þekkja þann sem um ræðir ósköp lítið. Hann efast um að hann sé sá sami og tók sverðið. „Það er eitthvað svo fjarstæðukennt við það,“ segir Benedikt, sem krafðist ekki útskýringa á því hvernig sverðið fannst. „Ég var búinn að gefa út að það yrðu engir eftirmálar ef sverðið kæmi til baka og ég ætla að standa við það.“Var búinn að gefa upp alla von Benedikt, sem er í hafnfirska víkingahópnum Rimmugýgi, segist hafa verið búinn að gefa upp alla von um að sjá sverðið sitt aftur. „Hlutir sem týnast eða eru stolnir koma sjaldnast til baka,“ segir hann. „Auðvitað hélt maður í einhverja von en allt raunsæi sagði manni að sverðið væri týnt og tröllum gefið. Stundum þarf maður bara að hlusta á hjartað í staðinn fyrir heilann.“ Ekkert sér á sverðinu þrátt fyrir tveggja vikna ferðalag. Benedikt segir að það verði ekki notað mikið á næstunni, þar sem flestir meðlimir Rimmugýgs eru um þessar mundir staddir á víkingahátíð í Danmörku. „Sverðið verður dregið fram þegar æfingar byrja aftur, það verður eflaust í september. Þangað til þá er það nú bara falið inni í herbergi.“
Tengdar fréttir Biðlar til þjófa að skila sér sérhönnuðu bardagasverði Sverði Benedikts Kristjánssonar var stolið úr bíl hans þegar hann var fyrir utan Nóatún í Hamraborg."Ég var kannski svona þrjár mínútur í Nóatúni og svo stökk ég inn og sótt tælenska matinn. Ég keyrði heim og þá fattaði ég að sverðið var horfið." 3. júlí 2014 14:06 Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila sér sérhönnuðu bardagasverði Sverði Benedikts Kristjánssonar var stolið úr bíl hans þegar hann var fyrir utan Nóatún í Hamraborg."Ég var kannski svona þrjár mínútur í Nóatúni og svo stökk ég inn og sótt tælenska matinn. Ég keyrði heim og þá fattaði ég að sverðið var horfið." 3. júlí 2014 14:06