Gringó fannst kaldur og örmagna eftir tveggja sólarhringa leit Kjartan Atli Kjartansson skrifar 8. desember 2014 14:26 Hér má sjá Gringó skömmu eftir að hann fannst. Mynd/Albert Steingrímsson „
Hann er allur að koma til. Hann var auðvitað rosalega kaldur,“ segir Cecilie Björg Hjelvik Björgvinsdóttir, eigandi hundsins Gringó sem týndist í Heiðmörk á föstudagskvöld. Gringó týndist þegar verið var að setja á hann ólina. „Hann er á einhverju mótþróaskeiði núna og við höfum hann aldrei lausan, en Gringó er fuglahundur. Dóttir mín var að setja hann í sjálflýsandi vesti og var að setja á hann ólina þegar hann verður var við ref, fugl eða eitthvað og rýkur af stað.“ Cecilie auglýsti eftir hundinum á Facebook og segir viðbrögðin hafa verið ótrúleg. „Okkur var sagt að auglýsa eftir honum á Facebook, að það væri líklegast til árangurs. Mér óraði aldrei fyrir því að svona margir myndi hjálpa til við leitina. Heiðmörkin hreinlega iðaði af lífi bæði á laugardag og sunnudag, það voru svo margir að leita hans. Ótrúlegasta fólk sem við þekktum ekkert var að hringja og spyrja um hann. Maður er hreinlega hrærður yfir þessu. Þetta var bara nánast eins og að manneskja hefði týnst.“Sýnir hversu ábyrgir hundaeigendur eru „Mér finnst mikilvægt að segja frá þessu máli. Bæði vegna þess að við fjölskyldan viljum þakka öllum þeim sem hjálpuðu. Við þekkjum ekki alla og viljum fá að koma einlægum þökkum á framfæri. En mér finnst líka mikilvægt að vekja athygli á því hversu ábyrgir hundaeigendur eru. Oft er það í fréttum þegar hundar glefsa eða ef hundaskítur er ekki hirtur og stundum er sagt frá því ef hundar eru vannærðir. En staðreyndin er sú að nánast allir hundaeigendur eru mjög ábyrgir og viljugir til að hjálpa, eins og sást á þessum viðbrgöðum fólks. Þetta var bara með ólíkindum,“ útskýrir hún og bætir við: „Það var bara eins og einhver maskína færi af stað.“ Fjölskyldan leitaði að Gringó til hálf tvö aðfaranótt laugardags. Einnig var leitað á laugardagskvöldið og svo fannst Gringó um hádegisbilið í gær.Albert fann hundinn Það var Albert Steingrímsson sem fann hundinn. Hann segir Gringó hafa verið orðinn kaldan og þreyttan. „Já, hann var alveg bugaður greyið. Hann hálfvegis lá í fastri stöðu þegar við komum að honum. Hann hefði líklega ekki þolað aðra nótt. Vestið sem hann var í var freðið fast við hann.“ Gringó gat varla gengið. „Ég kom einhverju smávegis vatni ofan í hann og þá gátum við aðeins gengið af stað. En hann var svo þreyttur að ég þurfti að halda á honum í bílinn. Það hafa verið einhverjir þrír kílómetrar. Versta við þetta var að farsímasambandið var mjög slæmt þarna, þannig að ég gat ekki hringt í neinn. En þetta hafðist allt.“ Albert naut aðstoðar hundsins sín en þeir fundu slóð Gringó á sunnudeginum. „Það var mjög mikilvægt að finna slóðina og í raun hending. Við sáum að hann var orðinn skref stuttur og áttuðum okkur á að þetta var slóðin hans.“ Gringó er því kominn heim og er allur að braggast eftir samstillt átak hundaeigenda.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Sjá meira