Harma umferðaröngþveiti: Segja Kópavogsbæ hafa brugðist bæjarbúum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. október 2014 22:59 Týr fer fram á að bæjarstjórn geri nákvæma grein fyrir hvað fór úrskeiðis í Kópavogi í gær. Vísir/GVA
Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, hefur sent frá sér ályktun vegna þess að ekki var byrjað að salta og moka götur bæjarins í gær fyrr en rúmlega 8 um morguninn. Olli það miklu umferðaröngþveiti enda hafði snjóað um nóttina og hált var á vegum. Í ályktuninni segir að félagið harmi „þann atburð sem átti sér stað í Kópavogi þriðjudaginn 21. október síðast liðinn, þegar Kópavogsbær brást bæjarbúum og götur bæjarins voru ekki saltaðar.“ Félagið segist líta svo á að um virkilega alvarlegan atburð sé að ræða þar sem mikið hafi verið um umferðarslys- og óhöpp sem annars hefðu líklegast ekki orðið. Fer félagið fram á að bæjarstjórn geri nákvæma grein fyrir hvað fór úrskeiðis og hvernig bæta skuli úr verkferlum svo slíkt komi ekki fyrir aftur. Þá segir í lok ályktunarinnar: „Vill Týr hvetja þá aðila sem urðu fyrir tjóni vegna þessara mistaka að kanna rétt sinn til skaðabóta úr hendi bæjarins. En telja verður að bærinn geti hæglega borið ábyrgð á því tjóni.“ Ályktunin er í heild sinni er hér fyrir neðan.Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, harmar þann atburð sem átti sér stað í Kópavogi þriðjudaginn 21. október síðast liðinn, þegar Kópavogsbær brást bæjarbúum og götur bæjarins voru ekki saltaðar.Félagið telur þennan atburð virkilega alvarlegan enda olli hann fjölda umferðarslysa- og óhappa sem annars hefðu að öllum líkindum ekki orðið. Enda er ekki leyfilegt fyrir almenning að setja bíla sína á nagladekk fyrr en 1. nóvember. Þá fer félagið fram á það að bæjarstjórn gefi félaginu ásamt bæjarbúum skýrari svör um hvað nákvæmlega fór úrskeiðis þennan morgun. En einnig að útlistað sé hvernig eigi að bæta úr verkferlum bæjarins, þannig að útilokað sé að slíkt eigi sér stað aftur.Eins og nefnt er að ofan varð fjöldinn allur af umferðaslysum- og óhöppum þegar fólk var á leið til vinnu og í skóla þennan morgun sem rekja má til mistaka starfsmanna bæjarins sem bæjaryfirvöld bera ábyrgð á. Vill Týr hvetja þá aðila sem urðu fyrir tjóni vegna þessara mistaka að kanna rétt sinn til skaðabóta úr hendi bæjarins. En telja verður að bærinn geti hæglega borið ábyrgð á því tjóni.Stjórn Týs f.u.s. Kópavogi
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira