Sömu mistök og gerð voru fyrir hrunið Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. október 2014 07:00 Gylfi Arnbjörnsson.
Hagdeild ASÍ býst við að vöxtur landsframleiðslu verði 3,1-3,5 prósent fram til ársins 2016. Vöxtur einkaneyslu verði á bilinu 3,4-4,3 prósent og hann muni vaxa í takt við batnandi stöðu heimilanna. Gert er ráð fyrir að kaupmáttur launa vaxi, skuldir lækki og væntingar almennings verði góðar. Þá er búist við því að fjárfestingar muni taka við sér og aukast á bilinu 14,8-17,2 prósent. Hlutfall fjárfestinga af landsframleiðslu verði komið yfir tuttugu prósent á árinu 2016. Þá muni draga úr atvinnuleysi. Hagdeildin hefur þó áhyggjur af aukinni verðbólgu sem Seðlabankinn muni svara með hærri vöxtum. Þá hefur hagdeild ASÍ áhyggjur af því að hagvöxtur verði nú borinn uppi af vexti þjóðarútgjalda í stað útflutnings. Viðskiptajöfnuður við útlönd versni því á komandi árum og ekki sé sjáanlegt að ríkisfjármálin muni stuðla að auknum stöðugleika. Þvert á móti virðist stjórnvöld ætla að gera sömu hagstjórnarmistökin og gerð voru á árunum fyrir hrun þegar ríkisfjármálin unnu beinlínis gegn viðleitni Seðlabankans til að koma á stöðugleika. Þarna segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, að vísað sé til bæði skuldaleiðréttingarinnar og skattastefnu ríkisstjórnarinnar. „Hvað sem um hana má segja að öðru leyti, þá lá fyrir að með henni er verið að færa fjármuni inn í hagkerfið. Seðlabankinn mat það þannig og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að þetta sé verðbólguhvetjandi. Það sama á við um skattastefnu ríkisstjórnarinnar,“ segir Gylfi. Með minnkandi viðskiptajöfnuði segir Gylfi að unnið sé gegn stefnu um langtímastöðugleika. „Það var nú það sem ríkisstjórnin lýsti yfir í nóvember í fyrra að hún myndi haga öllum sínum ákvörðunum út frá því meginsjónarmiði að styðja við stöðugleikann,“ segir forseti ASÍ.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira