Erfðaskrá stjúpu gildir Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. október 2014 21:01 Erfðaskráin sem konan gerði árið 1993 skal gilda við skiptingu dánarbúsins. Vísir/Getty
Hæstiréttur sneri á mánudaginn við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur vegna deilu um skiptingu dánarbús. Málið snerist um dánarbú hjóna þar sem maðurinn lést árið 1993 og konan lést í fyrra. Konan hafði setið í óskiptu búi þangað til en hjónin höfðu árið 1970 gert með sér erfðaskrá um að það þeirra sem lengur lifði myndi erfa hitt að öllu leyti. Konan erfði því manninn þegar hann lést og áttu börn mannsins svo að erfa eignir föður síns samkvæmt erfðaskránni frá 1970, en hjónin áttu engin börn saman. Konan gerði hins vegar nýja erfðaskrá síðla árs 1993 þar sem hún arfleiddi annan aðila að sínum eignum. Þetta sættu börn mannsins sig ekki við og vildu að erfðaskráin frá árinu 1970 myndi gilda. Þar með myndu þau erfa eignir dánarbúsins. Vegna ágreinings um skiptingu búsins vísaði skiptastjóri málinu til héraðsdóms sem kvað upp dóm í september síðastliðnum. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að konunni hafi ekki verið heimilt að afturkalla eða breyta erfðaskránni frá 1970, þar sem slíkt megi aðeins gera með samþykki beggja aðila, nema sérstakar ástæður komi til. Héraðsdómur féllst ekki á það að maðurinn væri látinn gæti talist til sérstakrar ástæðu. Þá féllst dómurinn heldur ekki á það að erfðaskráin frá 1993 hróflaði á engan hátt við erfðaskránni frá 1970, eins og tekið væri fram í nýju erfðaskránni. Dómurinn taldi þvert á móti að nýja erfðaskráin svipti börn mannsins arfsrétti sínum. Skyldi erfðaskráin frá 1970 því vera gild erfðaskrá við skiptingu dánarbúsins. Þessari niðurstöðu héraðsdóms var Hæstiréttur ósammála. Í dómnum kemur fram að í erfðaskránni frá 1970 hafi hvergi komið fram að að annað hjónanna gæti ekki, án samþykkis hins, ráðstafað eignum sínum að eigin vilja. Þar að auki væri sérstaklega tekið fram í erfðaskránni frá 1993 að hún breytti í engu gömlu erfðaskránni. Þar af leiðandi gat konan ráðstafað sínum eignum eins og gert var í nýju erfðaskránni og skal hún gilda við skiptingu búsins. Börnin fá eftir sem áður hlut föður síns í arf.Hér má sjá dóminn í heild sinni.Uppfært: Í fréttinni stóð áður að erfðaskrá sjúpmóðurinnar gilti og því fengju börn mannsins engan arf. Það er ekki rétt. Hið rétta er að deilan stóð um helming búsins, þ.e. þann hluta sem konan ákvað í nýrri erfðaskrá árið 1993 að arfleiða annan aðila að en börnin. Héraðsdómur taldi konuna ekki hafa verið í rétti til að ráðstafa sínum hluta búsins. Því var Hæstiréttur ósammála og vísaði í 20. grein erfðalaga þar sem segir:Maki, sem situr í óskiptu búi, getur aðeins ráðið yfir sínum hluta úr búinu með erfðaskrá. Honum er heimilt að ráðstafa einstökum munum innan þessara eignarmarka, ef það gengur ekki í berhögg við fyrirmæli hins látna maka samkvæmt 2. mgr. 36. gr.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Sjá meira