Ráðherra útilokar ekki að minnstu braut Reykjavíkurflugvallar verði lokað Heimir Már Pétursson skrifar 22. október 2014 20:01
Innanríkisráðherra segist ekki geta útilokað að minnstu flugbrautinni á Reykjavíkurflugvelli verði lokað en það muni hins vegar ekki gerast áður en Rögnunefndin og Ísavía ljúki öryggisúttekt sinni á flugvellinum. Búist er við að Reykjavíkurborg gefi út formlegt byggingarleyfi í nágrenni flugbrautarinnar innan skamms. Valsmenn ehf eru með stór áform um byggingu á nýju hverfi á Hlíðarenda með blandaðri byggð fyrir um sex þúsund íbúðir og voru þau áform kynnt í mars síðast liðnum. Skipulag borgarinnar hefur samþykkt þetta fyrir sitt leyti og aðeins á eftir að gefa út formlegt byggingarleyfi svo framkvæmdir geti hafist. Framkvæmdin stangast hins vegar á við rekstur norð-austur, suð-vestur flugbrautar Reykjavíkurflugvallar sem samkomulag var gert um í október um að fengi að standa óhreyfð þar til nefnd Rögnu Árnadóttur um framtíð flugvallarins skilaði af sér. Er forsvaranlegt að gefa út slíkt leyfi áður en framtíð flugvallarins hefur verið ákveðin? „Ríkisvaldið getur ekki skipt sér af slíkum útgáfum hjá einstaka sveitarfélögum. Hins vegar var það þannig að Reykjavíkurborg og ríkið voru sammála um það að taka ekki stefnumótandi nýjar ákvarðanir er varðaði þetta mál fyrr en Rögnunefndin hefði lokið störfum. Hún hefur ekki lokið störfum en það er auðvitað ákvörðun ríkisvaldsins síðan hvort loka á brautinni og þá nákvæmlega hvenær,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. Nú sé í gangi öryggisúttekt hjá Ísavia um hvort flugvöllurinn geti sinnt hlutverki sínu án þessarar flugbrautar, sem notuð er í óhefðbundnum áttum í allt að 22 daga á ári. „Við bíðum eftir niðurstöðunni hvað það varðar. Það stóð til að loka henni um síðustu áramót en við erum að greina þessa úttekt hjá Ísavia,“ segir Hanna Birna. Þeir sem vilja flugvöllinn áfram óbreyttan segja nýtingarhlutfall minnka mikið ef flugbrautinni verði lokað og öryggi landsmanna m.a. vegna sjúkraflugs verði minna. „Bráðabirgðaniðurstöður frá Ísavia gera ekki ráð fyrir að þetta skapi óöryggi. Það sé hægt að nýta svæðið í Keflavík til að koma til móts við þetta. En við verðum bara að sjá hver niðurstaðan verður endanlega og síðan verður ákvörðun tekin í framhaldi af því,“ segir Hanna Birna. Mikilvægt sé að Rögnunefndin fái að klára sín störf. En það eru engu að síður líkur á að þessari flugbraut verði lokað á næstu mánuðum? „Það hefur verið í gildi í mörg ár og jafnvel áratugi samkomulag milli ríkis og Reykjavíkurborgar um að það sé framtíðin. Nú bíðum við eftir öryggisúttektinni og tökum ákvörðun í framhaldi af því,“ segir innanríkisráðherra.En þú útilokar það ekki? „Ég get ekki útilokað það, nei,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira