Innlent

Fimm sóttu um starf landlæknis

Bjarki Ármannsson skrifar
Geir Gunnlaugsson er núverandi landlæknir.
Geir Gunnlaugsson er núverandi landlæknir. Vísir/GVA
Fimm manns sóttu um starf landlæknis sem auglýst var laust til umsóknar þann 26. september. Embættið er skipað til fimm ára í senn og er Geir Gunnlaugsson, núverandi landlæknir, meðal umsækjenda.

Auk Geirs eru umsækjendur eftirfarandi: Birgir Jakobsson, fyrrverandi forstjóri Karólínska háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi, Kristjana S. Kjartansdóttir, yfirlæknir hjá Heilsugæslunni í Hamraborg, María Ólafsdóttir, heimilislæknir hjá Heilsugæslunni í Árbæ, og Vilhelmína Haraldsdóttir, sérfræðilæknir á lyflækningasviði Landspítala.

Skipað verður í starfið frá 1. janúar næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×