Innlent

Skagfirðingar safna fyrir speglunartæki

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Skagfirskir Kiwanismenn vilja átak gagn ristilkrabbameini.
Skagfirskir Kiwanismenn vilja átak gagn ristilkrabbameini. Fréttablaðið/GVA
Kiwanisklúbburinn Drangey ætlar að safna fyrir kaupum á speglunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.

„Klúbburinn hefur ákveðið að fara í fjársöfnun á meðal fyrirtækja og stofnana í Skagafirði til að kaupa framangreint tæki, sem meðal annars myndi nýtast í átaksverkefni varðandi skimun fyrir ristilkrabbameini,“ segir í erindi til byggðaráðs Skagafjarðar þar sem óskað er eftir styrk til að kaupa tækið sem kostar um 18 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×