Innlent

„Þegar eitthvað óvænt kemur upp á þá getur alltaf farið illa“

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Sjúklingar þurftu frá að hverfa á bráðaamóttöku Landspítalans í Fossvogi í dag þar sem löng bið myndaðist vegna verkfallsins. Yfirlæknir hefur óskað eftir undanþágu til að kalla út lækna ef hættuástand myndast í kvöld.

Hilmar Kjartansson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir mikið álag hafa verið þá fáu lækna sem hafa verið að vinna á bráðamóttöku í dag.

Aðsókn að bráðamóttökunni hafi verið yfir meðallagi og því hafi þurft að forgangsraða. Reynt sé að tryggja öryggi sjúklinga. 

„Þegar svona er ástatt og það er undirmannað og eitthvað óvænt kemur upp á þá getur alltaf farið illa en það er náttúrulega það sem við viljum fyrirbyggja, “ segir Hilmar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×