Áreitti 14 ára stúlku í gegnum Facebook og Skype Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. nóvember 2014 12:24 Maðurinn játaði skýlaust brot sín. Vísir/Getty
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt 23 ára gamlan karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita 14 ára stúlku kynferðislega í gegnum samskiptamiðlana Facebook og Skype, sem og í gegnum sms. Brot mannsins voru framin í maí og júní 2013. Í ákæru var manninum gefið að sök að hafa rætt við stúlkuna á kynferðislegan hátt og beðið hana um að hitta sig til þess að hafa við hana kynferðismök. Auk þess var honum gefið að sök að hafa sýnt stúlkunni kynfæri sín á meðan hann fróaði sér og fengið stúlkuna til að sýna sér ber brjóst hennar, hvort tveggja í gegnum vefmyndavél. Maðurinn játaði skýlaust brot sín, bæði á rannsóknarstigi málsins og fyrir dómi. Var það metið til refsilækkunar auk þess að maðurinn hefur ekki hlotið refsidóm áður. Ungur aldur stúlkunnar, sem manninum var kunnugt um, var hins vegar metinn til refsihækkunar. Var maðurinn dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára og greiðslu sakarkostnaðar. Þá var hann dæmdur til að greiða stúlkunni 400.000 krónur í miskabætur.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri alvarlegri samtöl og oftar haft samband við Neyðarlínuna Innlent Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Erlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns Fleiri alvarlegri samtöl og oftar haft samband við Neyðarlínuna Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Sjá meira