Innlent

Sjö mánaða fangelsi fyrir Rítalínssölu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/stefán
Rúmlega fimmtugur maður var í Hæstarétti Íslands í gær dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir vörslu og sölu Rítalíns.

Maðurinn var í Héraðsdómi Reykjavíkur í desember í fyrra sakfelldur fyrir lyfjalagabrot með því að hafa selt einstaklingi tíu stykki af Rítalíni og átt 109 stykki af Rítalíni í sölu- og dreifingarskyni, án tilskilinna leyfa.  Maðurinn neitaði sök fyrir dómi.

Hann á að baki langan sakaferil og var hann í júní í fyrra meðal annars sakfelldur fyrir sambærilegt brot. Var hann þá dæmdur í sex mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×