Sprauta í hanskahólfinu en það versta var lyktin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. október 2014 12:01 "Það versta var lyktin í bílnum,“ segir Lena Margrét Aradóttir.
Lena Margrét Aradóttir, byggingafræðingur sem komin er rúmar 39 vikur á leið, varð fyrir því óláni á dögunum að fjölskyldubílnum var stolið. Bíllinn fannst fyrr í vikunni en það voru þó ekki ekki gleðitíðindin ein og sér. „Það versta var lyktin í bílnum,“ segir Lena Margrét í samtali við Vísi. Ógæfumaður hafi verið stöðvaður á rúntinum en svo virðist sem hann hafi búið í bílnum síðan honum var stolið. „Hann sagðist reyndar hafa fengið bílinn hjá vini sínum,“ segir Lena en bíllinn, hvítur Chevrolet Lacetti, hafði greinilega fengið á sig nokkur högg. „Það var búið að klessa hann allan. Það var eiginlega bara allt að honum,“ segir Lena Margrét. Í hanskahólfinu fannst svo sprauta og fengu Lena og fjölskylda þau ráð að vera ekki að þreyfa mikið í bílnum eftir týndum munum. Lena Margrét segir að sem betur fer hafi TM sýnt fjölskyldunni góðan skilning. Vera má að hægt hefði verið að gera bílinn gangfæran en samþykkt hafi verið að meta hann ónýtan. „Ég hafði litla lyst á að setja börnin mín í þennan bíl. Þau hjá TM skildu það vel.“ Lena minnir bílaeigendur á mikilvægi þess að læsa bílum sínum. Það sé lykilatriði en komi auðvitað ekki í veg fyrir bílaþjófnað. Í þeirra tilfelli var bílhurðin spennt upp. Hún segir fjölskylduna leita að nýjum bíl og mögulega sé hann fundinn. Hún grínast með að vonandi bíði barnið í nokkra daga svo fjölskyldan geti farið á eigin bíl til og frá fæðingardeildinni þegar að stóru stundinni kemur.
Mest lesið Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Fleiri fréttir Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Sjá meira