Kálfafóðurssmjörið kostaði 50 milljónir Sveinn Arnarsson skrifar 17. október 2014 07:00 Það smjör sem á að nota í kálfafóður kostaði 50 milljónir í innkaupum. fréttablaðið/Auðunn Níelsson
Þau þrjátíu og tvö tonn af írsku smjöri sem Mjólkursamsalan ákvað að nota ekki í framleiðslu sína, heldur láta renna út fyrir síðasta neysludag kostuðu rúmar 50 milljónir í innkaupum. Hagnaður fyrirtækisins á síðasta ári nam 200 milljónum. Smjörið mun allt fara í gerð kálfafóðurs í stað þess að nýta það í innlenda framleiðslu. „Gefur okkur svigrúm fyrir jólin,“ segir Einar Sigurðsson, forstjóri MS. Í desember á síðasta ári ákvað Mjólkursamsalan að flytja inn 88,7 tonn af írsku smjöri á fullum tollum. 1.568 krónur kostaði hvert kíló af þessu írska smjöri fluttu inn til landsins. Heildarverð smjörsins nam því rétt tæpum 140 milljónum króna. Verð þeirra þrjátíu og tveggja tonna sem Mjólkursamsalan hefur ákveðið að nýta í gerð kálfafóðurs, nemur því 50 milljónum króna.Einar Sigurðsson, forstjóri MS.Einar segir þetta fýsilegan kost, að nýta erlenda smjörið með þessum hætti. „Við erum að sjá núna mikla aukningu í sölu á rjóma. Við framleiðum kálfafóður fyrir landbúnaðinn. Ef við myndum ekki nýta fituna úr írska smjörinu í kálfafóður hefðum við að öðrum kosti þurft að nýta innlenda framleiðslu í fóðrið. Það að eiga þetta erlenda smjör núna á lager býr þannig til svigrúm til þess að eiga nóg af íslenskri framleiðslu fyrir jólavertíðina. Við búum okkur undir mikla sölu á rjóma fram að jólum.“ Fram kemur á vef Hagstofunnar að verð smjörsins án tolla sé um 65 milljónir króna. Tollur er settur á hvert kíló að upphæð 623 krónur og því nam tollurinn 55 milljónum króna. Einnig er settur 30 prósent tollur á verð smjörsins og bætast því við tæpar 20 milljónir. Því er samanlagður tollur á smjörið 75 milljónir króna, tíu milljónum hærra en sjálft innflutningsverðið á smjörinu. Einar segir verðið á smjörinu ekki vera aðalatriðið. „Við verðum að hafa það hugfast að ef þetta smjör yrði ekki nýtt yrðum við að nota innlenda framleiðslu í fóðurgerðina. Þannig að það jafnar sig út þegar allt kemur til alls.“ Velta Mjólkursamsölunnar í fyrra var um 20 milljarðar íslenskra króna og hagnaður fyrirtækisins nam 200 milljónum. Því eru þessar upphæðir sem fóru í innflutning írska smjörsins nokkuð stór hluti af hagnaði fyrirtækisins. Til að mynda eru tollar smjörsins 65 milljónir, eða þriðjungur hagnaðar fyrirtækisins.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira