Vikan á Vísi: Mannsbjörg, poppstjörnur í heimsókn og nýr ráðherra Aðalsteinn Kjartansson skrifar 7. desember 2014 12:00 Vísir
Læknaafrek, poppstjörnur og nýr innanríkisráðherra voru málin sem hreinlega áttu fréttavikuna. Skiptar skoðanir voru þó af sumum þeirra frétta sem fluttar voru af hjónakornunum Beyoncé og Jay Z en allir virðast á einu máli um frækið afrek Tómasar Guðbjartssonar og teymisins sem bjargaði lífi fórnarlambs hnífsstunguárásar.Afrek Tómasar og teymisins sem bjargaði lífi fórnarlambs hnífsstunguárásar á Hverfisgötu vöktu athygli.VísirSkorinn upp með plasthnífi á meðan annar hélt rifjunum í sundurÞær björgunaraðgerðir sem unnar voru á Landspítalanum á sunnudag í síðustu viku eftir að karlmaður var stunginn með hnífi á Hverfisgötu þykja kraftaverki líkastar. Maðurinn, Sebastian Andrzej Golab, var stunginn í gegnum hjartað og voru áverkarnir verulega alvarlegir, en á tímapunkti var honum ekki hugað líf. Það voru skurðlæknarnir Tómas Guðbjartsson og Helgi Kjartan Sigurðsson sem tóku á móti Sebastiani á Landspítalanum, en báðir voru þeir á bakvakt heima hjá sér. Ástandið var það slæmt að enginn tími gafst til að fara með Sebastian á skurðstofu, sem staðsett er á annarri hæð hússins. Ákvörðun var því tekin um að fara inn í eitt herbergi slysavarðstofunnar og opna þar brjósthol hans. „Það var bara með hálfgerðum plasthníf sem er notaður meira til að hreinsa sár. Ekki eiginlegur skurðhnífur,“ sagði Tómas í samtali við Vísi.„Tómas og hans teymi gáfust aldrei upp“Fleiri afrek Tómasar skurlæknis voru rifjuð upp í kjölfarið; meðal annars þegar hann bjargaði Jóni Gunnari Benjamínssyni sem lenti í alvarlegu bílslysi á Hellisheiði árið 2007. „Mér skilst að fáir hafi komið jafn slasaðir eins og ég inn á bráðamóttöku og lifað það af,“ segir Jón Gunnar. Hann kastaðist út úr bílnum og fékk hann ofan á sig. Í dag er Jón lamaður fyrir neðan mitti. Ólöf var kynnt til leiks sem nýr innanríkisráðherra.VísirÓlöf Nordal verður innanríkisráðherraÓlöf Nordal var skipuð innanríkisráðherra í ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, tilkynnti þingmönnum flokksins skipan nýs ráðherra á þingflokksfundi í Valhöll.. Ólöf tók við embættinu af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem sagði af sér á dögunum.Harkalegar nágrannaerjur í HörgárdalFyrir rúmum tveimur árum keypti parið Siggi og Oddur Andri, eða þeir Sigurður Hrafn Sigurðsson og Oddur Andri Thomasson Ahrens, draumaeign í Hörgárdal. Þar ætluðu þeir að búa friðsælu lífi saman með sína hunda, kanínur og hænur. Þessi draumur breyttist í martröð – þeir sitja fastir í því sem ekki er hægt að kalla annað en svæsnar nágrannaerjur.Þyrlan sást í bakgarði lúxussumarhúss sem Beyoncé og Jay Z eru sögð hafa verið í.VísirSvört þyrla í bakgarðinum þar sem Beyoncé og Jay Z eru sögð veraSvartri þyrlu var lagt fyrir utan lúxussumarhús í Úthlíð í Biskupstungum þar sem talið var að tónlistarstjörnurnar Jay-Z og Beyoncé séu stödd. Þyrlan er, eins og sést á myndinni, staðsett í bakgarði sumarhússins. Eigandi staðarins, veitingamaðurinn Jóhannes Stefánsson í Múlakaffi, hafnar því hinsvegar að þau séu á staðnum. „Nei, nei, nei. Það getur ekki staðist,“ sagði hann aðspurður hvort hann væri að hýsa tónlistarfólkið bandaríska.Vísir staðfesti svo veru poppstjörnunnar Beyoncé og eiginmanns hennar Jay Z á landinu. Mynd náðist af þeim ganga úr svartri þyrlu við Skógafoss á miðvikudag. Tvær Range Rover bifreiðar biðu parsins við lendingarstaðinn og var parinu ekið áleiðis að fossinum.Greinin sem Biggi skrifaði vakti hörð viðbrögð.Biggi lögga gerir allt brjálað Grein sem Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, birti á Vísi í síðustu viku hefur vægast sagt vakið hörð viðbrögð. Fyrirsögn greinarinnar var „Greinin sem ekki má skrifa“. Svo hörð voru viðbrögðin að Birgir fann sig knúinn til að skrifa afsökunarbeiðni. „Í gær steig ég út á hálli ís en ég hef nokkurn tímann gert í þessum skrifum mínum,“ skrifaði Birgir og hélt áfram: „Ég vissi að viðbrögðin myndu vera misjöfn.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Sjá meira