Fjármagna framkvæmdir til að hindra gjaldtöku Sveinn Arnarsson skrifar 3. júní 2014 11:00 Ferðamenn við Dettifoss. Fréttablaðið/Vilhelm
Hið opinbera hefur ákveðið að veita fjörutíu milljónir króna til gerðar göngustígs og nýs útsýnispalls við Dettifoss að vestanverðu. Þetta setur strik í áform landeigenda sem vilja taka gjald af ferðamönnum sem heimsækja svæðið, meðal annars til að fjármagna uppbyggingu göngustíga og útsýnispalla. Fjármunirnir sem hið opinbera hefur nú veitt í þetta verkefni koma úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða og fara í að byggja 100 fermetra útsýnispall og 260 metra göngustíg. Hjörleifur Finnsson, þjóðgarðsvörður Vatnajökulsþjóðgarðs, telur að með þessu verði fyrirhuguð gjaldtaka landeigenda ómöguleg. „Útsýnispallurinn og göngustígurinn eru í landi þjóðgarðsins. Það verður erfitt að rukka fyrir göngustíg sem er að hluta til í ríkiseigu og að hluta til í einkalandi.“ segir Hjörleifur. „Ef gjaldtökuhugmyndir landeigenda standast lög, sem ég efa, þá neyðumst við til að byggja nýjan göngustíg alfarið í okkar landi. Eðlilegast væri þó ef núverandi vegstæði yrði notað áfram. Þannig myndu útsýnispallurinn og bílastæðið tengjast best,“ segir hann. Á heimasíðu Landeigendafélags Reykjahlíðar, sem nær frá Námaskarði að Dettifossi, eru rökin fyrir gjaldtöku sögð að vegna ágangs ferðamanna þurfi að vernda náttúruna og byggja upp göngustíga og útsýnispalla.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira