Blóðferlar samræmast frásögn sakbornings Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 20. maí 2014 07:00 Hinir sérfróður matsmenn eru viðurkenndur blóðferlagreinir og sérfræðingur í blóðferla- og vettvangsrannsóknum. Fréttablaðið/Gunnar
Matsgerð tveggja sérfróðra matsmanna, sem dómkvaddir voru til að endurskoða blóðferlarannsóknir í morðmáli sem átti sér stað á Egilsstöðum í maí í fyrra, ber með sér að túlkun á blóðferlum í málinu af rannsakendum lögreglunnar hafi verið röng.Friðrik Brynjar Friðriksson var dæmdur fyrir að hafa myrt karlmann á heimili hans með því að stinga hann ítrekað í líkamann með hníf. Friðrik hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu í málinu en því hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar og mun málflutningur fara fram í júní. Í matsgerðinni kemur meðal annars fram að uppgötvanir matsmannanna séu að miklu leyti í samræmi við framburð Friðriks Brynjars, sem héraðsdómur taldi ekki geta átt sér stoð í raunveruleikanum. „Rannsóknarlögreglumaður hefur túlkað frákastsblóðferla (cast off patterns) á svölunum sem stefna frá megin höfuðsvæði hins látna. Það er okkar álit að þessi túlkun sé röng. Okkar álit er, að sletturnar (spatter) sem stefna báðum megin frá höfði séu afleiðing af að höfðinu sé sleppt ofan í blóðpoll sem myndast hafi undir því,“ segir í matsgerðinni.Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaðurSveinn Andri Sveinsson, verjandi Friðriks, segir matsgerðina hnekkja að mjög miklu leyti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms. „Í dómnum er byggt á þeirri niðurstöðu rannsakenda á vettvangi að hinn látni hafi fyrst verið stunginn í stofunni, þá dreginn út á svalir og þar verið haldið áfram að stinga hann. Framburður ákærða í málinu um það að hann hafi komið að hinum látna í stofunni og dregið hann út á svalir þótti þess vegna ekki standast. En matsmennirnir komast hins vegar að allt annarri niðurstöðu sem er sú að allar stungurnar hafi átt sér stað inni í stofunni og út frá því geti frásögn ákærða staðist,“ segir Sveinn Andri í samtali við Fréttablaðið í dag. Í matsgerðinni kemur einnig fram gagnrýni á vettvangsrannsókn lögreglunnar, þar sem ljósmyndir hafi ekki verið teknar af öllum flötum og með mælistiku og þær séu að mestu úr fókus. Þá hafi ekki verið borin kennsl á um hvers konar blóðför hafi verið að ræða á nokkrum stöðum.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Fleiri fréttir Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Sjá meira