Nýtt fyrirkomulag á flugeldasýningu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 29. desember 2014 15:15 Á flugeldasýningum eru notaðir sérstakir sýningarflugeldar en nú verða notaðir þeir flugeldar sem eru í almennri sölu. vísir/stefán
Björgunarsveit Hafnarfjarðar bryddar upp á nýju fyrirkomulagi á flugeldasýningar sveitarinnar í ár. Undanfarin ár hefur verið haldin stór sýning 29. desember en nú í ár verða haldnar þrjár minni sýningar. Sú fyrsta fór fram í gær en hinar síðari verða í kvöld og á morgun. Báðar sýningarnar verða klukkan 20:30. „Við höfum fengið jákvæð viðbrögð og mikinn skilning bæjarbúa,“ segir Anna María Daníelsdóttir meðlimur sveitarinnar. Sveitin er oft kölluð Spori í daglegu tali en Spori er kallmerki þeirrar. Í yfirlýsingu frá björgunarsveitinni segir að ekki hafi verið hægt að halda stóra sýningu sökum hve kostnaðarsamt það sé. Illa hafi gengið að fá styrki frá fyrirtækjum og því hafi þetta verið niðurstaðan. „Við ætlum að prófa þetta fyrirkomulag í ár. Svo verður það skoðað á næsta ári ,“ segir Anna og bætir við að það sé ekki eingöngu fyrirkomulagið sem sé öðruvísi heldur séu það annars konar rakettur sem fari á loft heldur en áður. „Á stórum sýningum eru notaðir sérstakir sýningarflugeldar sem ekki eru í almennri sölu. Þetta eru í raun sölusýningar. Við höfum það fyrirkomulag núna að skjóta flugeldinum og samtímis sýnum við með aðstoð skjávarpa hvers konar söluvara það er sem sést hverju sinni.“ „Við gripum til þessa ráðs og það hefur gefið góða raun,“ segir Anna. „Við höfum lagt okkur fram við að þóknast fólki og íbúum í nágrenninu og vonandi sýnir fólk þessu skilning.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Fleiri fréttir „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Sjá meira