Innlent

Í farbanni vegna ákæru fyrir kynferðisbrot

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms.
Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms. Vísir / Stefán
Hæstiréttur hefur staðfest farbannsúrskurð yfir manni sem ákærður hefur verið fyrir kynferðisbrot. Maðurinn sætir ákæru fyrir að hafa farið inn í svefnherbergi konu, fróað sér fyrir framan andlit hennar og fengið sáðfall yfir öxl hennar og hár sem og kodda sem hún lá á.

Manninum er einnig gefið að sök að hafa káfað á konunni þar sem hún lá á fjórum fótum á svefnherbergisgólfinu að kasta upp. Á þeim tímapunkti er maðurinn sagður hafa losað brjóstahaldara hennar, þuklað á brjóstum hennar og strokið kynfæri hennar innanklæða.

Í yfirheyrslum hjá lögreglu hefur maðurinn neitað sök en DNA rannsókn á sínum úr hári konunnar og brjóstahaldara séu úr manninum. Hann er ekki íslenskur ríkisborgari og með takmörkuð tengsl við landið, að því er segir í héraðsdóminum sem Hæstiréttur staðfesti.

Farbannsúrskurðurinn gildir til 15. janúar næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×