Afar þakklát fyrir hjálpsemi vegfarenda Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. október 2014 11:16 Ronja fer til dýralæknisins í dag til að láta taka saumana en það þurfti að sauma um 100 spor í aðra afturlöpp hennar.
Vísir greindi í gær frá eftirtektarverðum viðbrögðum vegfarenda sem mynduðu varnargarð utan um hund sem lá slasaður á jörðinni við afleggjarann að Hafravatni. Vísir hafði samband við Ingu Kristínu Hafliðadóttur, eiganda Ronju, sem er 11 mánaða gömul Labradortík. „Við búum þarna við Suðurlandsveg hjá Hafravatnsafleggjara og vorum á leið með Ronju í pössun í fyrsta skipti. Það er eins og hún hafi fundið á sér að hún væri að fara frá okkur því hún hljóp þarna í burtu frá okkur. Það hefur hún aldrei gert áður,“ segir Inga. „Ég hljóp út til að leita að henni og var hinum megin við veginn. Ég sé hana ekki þar sem hún var komin yfir veginn en hún hlýtur að hafa séð mig því hún hleypur af stað. Þá kem ég auga á hana og sé þegar er keyrt á hana.“ Inga segir að ökumaður bílsins sem keyrði á Ronju hafi keyrt út í kant, stoppað og hringt á lögregluna. Lögreglan gat ekki komið en maðurinn lét Ingu hafa nafnspjaldið sitt svo hún gæti látið sig vita ef Ronja væri mikið slösuð. „Það voru síðan þrír eða fjórir bílar sem stoppuðu þarna hjá okkur og gáðu hvað væri að. Meðal annars komu þarna að hjón sem hringdu á dýralækni fyrir okkur,“ segir Inga. Aðspurð segir hún að það hafi komið sér mikið á óvart hversu margir stoppuðu hjá þeim til að athuga hvort allt væri í lagi. „Já, það kom mér mjög mikið á óvart. Maður heyrir meira af því í fjölmiðlum að fólk fari bara í burtu þegar það keyri á dýr og svo stoppar enginn til að athuga hvað hafi gerst. Þarna kom hins vegar fjöldi fólks að og lokaði eiginlega afleggjaranum svo við gætum hlúð að Ronju. Ég er afar þakklát öllum sem hjálpuðu okkur.“ Inga er að fara með Ronju til dýralæknisins á eftir í saumatöku og skoðun. Það þurfti að sauma um 100 spor í aðra afturlöpp hennar þar sem hún fékk mörg lítil sár við slysið. Inga segir löppina eiginlega hafa verið í henglum. Þá hafi ein táin þríbrotnað en það virðist ekki há Ronju mikið. Inga segir dýralækninn sem saumaði Ronju hafa sagt að það gæti tekið allt upp í einn og hálfan mánuð fyrir hana að jafna sig, en það komi betur í ljós á eftir hvað hún þurfi til dæmis að vera lengi á sýkla-og verkjalyfjum.
Tengdar fréttir Mynduðu varnargarð með bílum sínum utan um slasaðan hund „Mér fannst svolítið magnað að sjá þetta og þetta snart mig af því að ég átti sjálfur hund í níu ár sem ég missti fyrir ári síðan,“ útskýrir Kristinn. 20. október 2014 16:29 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Mynduðu varnargarð með bílum sínum utan um slasaðan hund „Mér fannst svolítið magnað að sjá þetta og þetta snart mig af því að ég átti sjálfur hund í níu ár sem ég missti fyrir ári síðan,“ útskýrir Kristinn. 20. október 2014 16:29