Tillögu VG um áheyrnarfulltrúa í nefndum hafnað Jóhann Óli Eiðsson skrifar 4. nóvember 2014 22:30 Guðrún Ágústa (t.v.) og Guðlaug visir/aðsent
Vinstri hreyfingin grænt framboð mun ekki fá áheyrnarfulltrúa í tveimur nefndum Hafnarfjarðarbæjar. Tillaga þess efnis var lögð fram á fyrsta fundi bæjarstjórnar þann 18. júní en felld á fundi forsetanefndar 30. október síðastliðinn. „Afgreiðsla málsins dróst svona lengi þar sem forsetanefndin var ekki fullmönnuð fyrr en á fundi 6. október. Við töldum eðlilegt að fulltrúar allra flokka tækju þátt í samtalinu um þetta mál og það útskýrir dráttinn,“ segir Guðlaug Kristjánsdóttir oddviti Bjartrar framtíðar og forseti bæjarstjórnar. Guðlaug segir að til standi að gera úttekt á starfsemi nefnda og ráða og skoða málið heildstætt. „Áheyrnarfulltrúar hafi verið samþykktir í forsetanefnd, bæjarráð auk fleiri ráða og meirihlutinn gaf að auki eftir sæti á landsþingi Sambands sveitarfélaga svo allir flokkar ættu þar mann. Ákvörðun forsetanefndar endurspeglar afstöðu meirihlutans að svo stöddu í máli þessu.“ Nefndirnar sem um ræðir eru menningar- og ferðamálanefnd og íþrótta- og tómstundamálanefnd. Áður hafði verið samþykkt að Samfylkingin hlyti áheyrnarfulltrúa í forsetanefndinni auk þess að Vinstri grænir fengu áheyrnarfulltrúa í mörgum nefndum og ráðum bæjarins. „Við höfum ekki fengið nein efnisleg rök fyrir synjuninni. Bón Framsóknarflokksins um áheyrnarfulltrúa var hafnað þar sem ekki var talin lagastoð fyrir því að veita þeim hann. Synjunin gagnvart okkur er hins vegar ekki rökstudd,“ sagði Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir Guðrún bendir einnig á að ekki fari nógu mikið fyrir samstöðunni sem talað var um eftir kosningar. Til hafi staðið að fá alla aðila að borðinu í öllum málum. Hins vegar það sé til að mynda stutt síðan að því var hafnað að fulltrúar allra flokka ættu sæti í starfshópi um skólastefnu bæjarins. Guðrún fór fram að málinu yrði vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. „Það hefur tíðkast að ef óeining er innan nefndar eða ráðs þá hefur málum verið vísað til bæjarstjórnar. Ég geri mér ekki vonir um að þau breyti um skoðun milli funda en það er mikilvægt að þetta mál verði rætt á bæjarstjórnarfundi.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira