Trúðurinn með gullna hjartað verðlaunaður Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. október 2014 19:15 Peggy Helgason virðir fyrir sér verðlaunin sem hún hlaut. Fyrir aftan hana er Sigurður Helgason, eiginmaður hennar.
Barnaheill – Save the Children á Íslandi fögnuðu í gær 25 ára afmæli í samkomusal Nauthóls í Nauthólsvík. Af því tilefni var árleg Viðurkenning Barnaheilla einnig afhent, en hún er veitt fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra. Það var Peggy Oliver Helgason iðjuþjálfi sem hlaut verðlaunin. Peggy hefur verið kölluð trúðurinn með gullna hjartað. Vigdís Finnbogadóttir er verndari Barnaheilla og stofnfélagi númer eitt. Það var fagfólk á Barna- og unglingageðdeild Landsspítalans sem hafði frumkvæði að því sumarið 1988 að stofna samtök sem hefðu það að meginmarkmiði að auka rétt barna í samfélaginu. Vigdís studdi dyggilega við undirbúningsstarfið og Barnaheill voru svo stofnuð rúmu ári síðar, 24. október 1989. Helstu verkefni Barnaheilla þann aldarfjórðung sem samtökin hafa starfað eru: 1993 Geldingalækur á Rangárvöllum opnaður sem heimili fyrir börn í vanda 1997 Barnaspítala Hringsins afhent íbúð fyrir foreldra langveikra barna af landsbyggðinni 1999 Skólar byggðir í Kambódíu og kennarar þjálfaðir eftir átök í landinu 2001 Ábendingalína um óviðeigandi og ólöglegt efni á neti opnuð 2007 Uppbyggingar- og menntunarverkefni í Norður-Úganda 2009 Rósin, minnisvarði til heiðurs börnum sem eiga um sárt að binda opnuð í Laugardal 2009 Gagnvirki fræðsluvefurinn barnasattmali.is opnaður 2009 Bann við að beita börn líkamlegri og andlegri refsingu lögfest á Alþingi eftir athugasemdir Barnaheilla vegna dóms hæstaréttar sem braut gegn Barnasáttmálanum 2010 Átta ára drengur óskar eftir íbúð – skýrsla Barnaheilla um heimilisofbeldi 2012 Tannheilsa íslenskra barna – átak og undirskriftasöfnun sem leiddi til lagabreytinga 2014 Skýrsla Barnaheilla og Evrópusamtakanna um fátækt í Evrópu. Auk útgáfu fjölda rita og veggspjalda, málþinga og ráðstefna sem samtökin hafa staðið fyrir til að vekja athygli á og ná fram breytingum á ýmsum málum er varða börn. Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök. Helstu áherslur eru á að standa vörð um réttindi barna, baráttu gegn ofbeldi á börnum, heilbrigðismál og að efla áhrifamátt barna í íslensku samfélagi. Frá upphafi hafa samtökin haft Barnasáttmálann að leiðarljósi og lagt áherslu á starf innanlands. Samtökin vinna að mannréttindum barna með því að vera málsvari þeirra, efla menntun og veita mannúðar- og neyðaraðstoð þegar hörmungar dynja yfir samfélög. Barnaheill eiga aðild að alþjóðasamtökunum Save the Children sem voru stofnuð í Bretlandi árið 1919 og starfa nú í 120 löndum. Í tilkynningu segir að þetta séu stærstu alþjóðlegu frjálsu félagasamtök sem starfa í þágu barna í heiminum. Stofnandi þeirra, Eglantyne Jebb, var með fyrstu baráttumanneskjum fyrir mannréttindum barna. Hún skrifaði stefnuyfirlýsingu samtakanna árið 1921 sem síðar varð grunnurinn að barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira