Námsgjöld leikskóla lækka í nýrri fjárhagsáætlun Bjarki Ármannsson skrifar 2. desember 2014 21:44 Fyrsta fjárhagsáætlun nýs meirihluta borgarstjórnar var samþykkt í kvöld. Vísir/Stefán
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár var samþykkt á fundi borgarstjórnar nú í kvöld. Þó nokkrar þeirra breytinga sem gerðar voru á milli umræðna snúa að skóla- og frístundamálum. Námsgjöld leikskóla lækka um rúmlega sex prósent og frístundastyrkur hækkar. „Framlögð fjárhagsáætlun einkennist af varfærni og ábyrgum rekstri,“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í ræðu sinni á fundinum. „Í henni er að finna þær áherslur sem meirihlutinn kynnti í byrjun sumars. Gjöld á barnafjölskyldur lækka, rík áhersla verður lögð á læsi, verk- og listgreinar í skólum auk uppbyggingaráforma.“ Framlag borgarinnar til hráefniskaupa í leik- og grunnskólum hækkar um 56 milljónir króna frá fyrri áætlun og framlög til sérkennslu í leik- og grunnskólum eru aukin um tæpar 48 milljónir króna. Þá eru tuttugu milljónir króna lagðar í sérstakt átak til að auka þátttöku í frístundastarfi fyrir börn af erlendum uppruna, ungmenni eldri en sextán ára sem ekki eru í námi, fatlaða framhaldsskólanema og börn tekjulágra foreldra sem uppfylla ekki skilyrði um fjárhagsaðstoð. Að auki var fimm ára áætlun borgarinnar fyrir árin 2015 til 2019 samþykkt en samkvæmt henni er fyrirhugað að Félagsbústaðir Reykjavíkur fjárfesti í fimm hundruð nýjum íbúðum á næstu fimm árum. Gert er ráð fyrir að fjárfestingin nemi allt að 13,5 milljörðum á næstu fimm árum.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Sjá meira