Óskar upplýsinga um málefni fanga Samúel Karl Ólason skrifar 2. desember 2014 13:16 Tryggvi Gunnarsson, Umboðsmaður Alþingis, fundaði með Guðmundi Inga Þóroddssyni, formanni Afstöðu, hagsmunasamtökum fanga. Vísir/GVA
Umboðsmaður Alþingis hefur beðið Innanríkisráðuneytið og Fangelsismálastofnun um svör varðandi tafir á meðferð erinda og kvartana frá föngum. Segir hann að við athuganir sínar á síðustu misserum hafi hann veitt því athygli að í ýmsum þessara mála hafi liðið allnokkur tími frá því að viðkomandi erindi hafi verið sent til Innanríkisráðuneytisins og þar til því hafi verið svarað. Tryggvi Gunnarsson, Umboðsmaður Alþingis, fundaði með Guðmundi Inga Þóroddssyni, formanni Afstöðu, hagsmunasamtökum fanga, í nóvember. Þar komu fram athugasemdir um að félaginu og föngum þætti ganga hægt að fá svör frá stjórnvöldum varðandi málefni fanga. Umboðsmaður Alþingis sendi í framhaldi af fundinum bréf til Innanríkisráðuneytisins og Fangelsismálastofnunar. Bréfin má sjá hér á heimasíðu Afstöðu. Í bréfunum óskar umboðsmaður eftir upplýsingum um ýmis erindi. Þar að auki vill hann upplýsingar um hvort stofnanirnar hafi mótað sér almennar viðmiðanir um afgreiðslu á erindum eða í málum þar sem teknar eru ákvarðanir í málum fanga. Meðal erinda sem Tryggvi vill upplýsingar um eru erindi þar sem Afstaða óskaði eftir áliti Fangelsismálastofnunar á hugmynd um að dreifa sprautum og nálum frítt af heilbrigðisstarfsfólki fangelsanna til eiturlyfjaneytenda í fangelsum og greiðan aðgang fanga að smokkum. „Í þessu sambandi hef ég í huga að þarna eiga í hlut frelsissviptir einstaklingar og það kann að hafa veruleg áhrif á hagsmuni þeirra að sem fyrst sé svarað til um og eftir atvikum skorið úr um hver séu réttindi þeirra í samskiptum við fangelsisyfirvöld,“ segir í bréfum umboðsmanns. „Þá verður almennt að gera ráð fyrir að fangar hafi alla jafna ekki sömu tök á að standa í málarekstri hjá stjórnvöldum og fylgja málum sínum eftir og aðrir borgarar.“ Hann óskar eftir svörum fyrir 15. desember. Guðmundur Ingi segir í pistli á heimasíðu Afstöðu að til þess að tæma kæruleiðir innan stjórnsýslu þurfi fyrst að liggja fyrir niðurstaða forstöðumanns viðkomandi fangelsis, sem sé svo kæranleg til fangelsismálastofnunar. Sú niðurstaða er svo kæranleg til innanríkisráðuneytisins. „Þetta ferli getur tekið marga mánuði, og allt upp í ár,“ segir Guðmundur.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira