Formaður múslíma segir fordómafulla kjána ekki svara verða Jakob Bjarnar skrifar 2. desember 2014 14:28 Gústaf Níelsson sá ástæðu til að kvarta undan Ibrahim Sverri Agnarssyni við lesendur Morgunblaðsins.
Gústaf Níelsson sagnfræðingur ritar grein sem hann birtir í Morgunblaðinu í dag, þar sem hann kvartar sáran undan hryssingslegum viðbrögðum Ibrahim Sverris Agnarssonar formanns Félags múslíma á Íslandi á málþingi Siðmenntar um Íslam, sem haldið var nú um helgina síðustu. Gústaf innti Sverri eftir viðhorfum hans til áðurbirts bréfs hans þar sem Gústaf vekur athygli á því sem hann telur augljóst ósamræmi milli orða Sverris og svo Salmans Tamimis, fyrrverandi formanns félagsins. „Það er svo fremur pirrandi að af okkur skuli vera ætlast að við hlaupum upp til handa og fóta og svörum allri þeirri vitleysu sem stöðugt veltur upp úr fordómfullum kjánum þessa lands,“ segir Sverrir og gefur engan afslátt þegar blaðamaður Vísis innti hann eftir þessu atviki. Gústaf segir Salmann hafa sagt að ekki kæmi til greina að fjármagna fyrirhugaða byggingu mosku með fjármagni sem komi erlendis frá. Að hún yrði „að vera gerð á íslenskum forsendum. Um leið og maður missir sjónar á því hvaðan fjármagnið fyrir henni kemur eða afhendir stjórnartaumana einhverjum aðilum úti í heimi missir maður tökin á því sem skeður í framhaldinu“. Sverrir hefur hins vegar sagt að til standi að leita fjármagns erlendis frá. Þegar Gústaf spurði Sverri út í þetta misræmi svaraði Sverrir: „Svarið er; þú ert fordómafullur idjót!“ Gústaf furðar sig á þessu svari og ber sig aumlega við lesendur Morgunblaðsins. Vísir endurtekur spurninguna og spyr Sverri hvort þetta sé ekki augljóst misræmi: „Í viðtalinu við Salmann er ekkert sagt um erlenda fjármögnum öðruvísi en ég hef orðað það, við tökum ekki við fjármagni sem við vitum ekki hvaðan kemur eða felur í sér að við missum fulla stjórn á moskunni hvað varðar stefnu, útgáfu eða val á Imam. Það er engin ágreiningur okkar á milli varðandi fjármögnun moskunnar.“En, hvernig líður byggingunni? „Samkeppni, í samvinnu við Arkítektafélag Íslands og Reykjavíkurborg, um teikningar á húsinu er á döfinni og þessa dagana er verið að ganga frá samkeppnislýsingunni. Ég verð vonandi byrjaður að byggja næsta sumar.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira