Fjöldi dómara haldist óbreyttur vegna álags Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 2. desember 2014 13:52 Dómurum í héraði var árið 2009 fjölgað um fimm, úr 38 í 43, vegna mikils álags á dómstólanna í kjölfar efnahagshrunsins. vísir/pjetur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur sem dómsmálaráðherra lagt fram frumvarp þess efnis að fjöldi héraðsdómara haldist óbreyttur til ársloka 2015. Dómurum í héraði var árið 2009 fjölgað um fimm, úr 38 í 43, vegna mikils álags á dómstólanna í kjölfar efnahagshrunsins. Þessi fjöldi var tímabundinn að því leyti að ekki ætti að ráða í þær stöður sem losnuðu eftir 1.janúar 2013 þar til fjöldi dómara yrði aftur 38. Heimildin hefur síðan þá verið framlengd í tvígang, nú síðast fram til 1.janúar 2015. Í frumvarpinu segir að dómstólaráð hafi tilkynnt dómsmálaráðuneytinu að það leggi áherslu á að fjöldi héraðsdómara haldist óbreyttur, að minnsta kosti til ársloka 2015. Enn sé mikið álag á dómstólum vegna efnahagshrunsins. Það sé einkum um að ræða mál frá sérstökum saksóknara en einnig einkamál sem höfðuð hafi verið á hendur stjórnendum og starfsmönnum föllnu bankanna og öðrum fjármálastofnunum. Þá er einnig bent á að mikil fjölgun hafi orðið á aðfararbeiðnum sem og málum er varða lögmæti þess að binda fjárskuldbindingu eða gengi eða vísitölu, en þau mál sæta flýtimeðferð. Þá segir einnig að ljóst sé að ef sett verður á fót þriðja dómstig, svokallað millidómstig, þurfi að taka til skoðunar hversu margir dómarar eigi að vera á hverju dómsstigi. Verði frumvarpið að lögum er áætlað að útgjöld aukist um 86 milljónir króna á árinu 2015 frá því sem ella hefði orðið þar sem héraðsdómurum er fjölgað um fimm. Gert hefur verið ráð fyrir að tímabundin fjárheimild vegna málsins verði framlengd um eitt ár í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2015 og mun lögfesting frumvarpsins því ekki leiða til aukinna útgjalda umfram það sem þar hefur verið gert ráð fyrir, að því er fram kemur í frumvarpinu.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira