Segir mikilvægt að efla alþjóðlegt samráð Stefán Árni Pálsson skrifar 2. desember 2014 18:44 Gunnar Bragi Sveinsson. Vísir/Vilhelm
Í dag funda utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins um eftirfylgni leiðtogafundarins sem haldinn var í Wales í september sl. Ráðherrarnir ræddu viðbrögð við breyttum öryggishorfum í Evrópu vegna aðgerða Rússa gagnvart Úkraínu, vaxandi umsvifa rússneska hersins og uppgangs öfgaafla í Miðausturlöndum og Norður-Afríku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. Rætt var um stöðu varnarviðbúnaðaráætlunar sem leiðtogar bandalagsríkjanna samþykktu í Wales að móta. Vinnunni miðar vel og hefur hluta af áætluninni verið hrint í framkvæmd í bandalagsríkjum Austur-Evrópu. Markmiðið með áætluninni er að treysta sameiginlegar varnir bandalagsins ekki síst með tilliti til öryggis bandalagsríkja í Austur-Evrópu. „Atlantshafsbandalagið hefur á undanförnum mánuðum sýnt í verki hversu vel það getur aðlagað sig að breyttum aðstæðum og nýjum verkefnum. Samhliða þessu er mikilvægt að efla alþjóðlegt samráð til að mæta nýjum áskorunum og vinna að friðsamlegri lausn deilumála” sagði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, sem tekur þátt í fundinum. Á fundi NATO-Úkraínunefndarinnar, sem utanríkisráðherra Úkraínu, Pavlo Klimkin ávarpaði frá Kænugarði, lýstu ráðherrarnir yfir ánægju með framkvæmd þingkosninganna í Úkraínu, hvöttu stjórnvöld til áframhaldandi lýðræðisumbóta og að áfram verði leitað friðsamlegrar lausnar á átökunum í landinu. Utanríkisráðherrafundurinn markaði einnig tímamót í samstarfi bandalagsins við Afganistan. Aðgerðum ISAF-alþjóðaliðsins sem staðið hafa í 13 ár lýkur í lok árs og ný stuðningsaðgerð hefst með formlegum hætti. Af því tilefni sótti Ashraf Ghani, forseti Afganistan, fundinn og þakkaði hann bandalaginu og samstarfsríkjum fyrir stuðning við umbætur í landinu.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira