Barnshafandi þurftu yfir ófærar heiðar Sveinn Arnarsson skrifar 17. desember 2014 18:15 Ófærð setur strik í reikninginn fyrir verðandi mæður á Norðurlandi Vísir/Auðunn
Aðfaranótt sunnudags komu tvær konur inn á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri, langt að í sjúkrabifreiðum með hjálp björgunarsveitarmanna, þar sem talið var að þær þyrftu að komast undir læknishendur sem fyrst. Önnur þeirra kom frá Dalvík en hin yfir Öxnadalsheiði úr Skagafirði. Á þeim tíma var veður válynt og tókst við erfið skilyrði að koma barnshafandi konunum undir læknishendur. Ingibjörg Hanna Jónsdóttir, forstöðuljósmóðir við Sjúkrahúsið á Akureyri, telur þá umgjörð sem sé búin fæðingum á Norðurlandi ekki nógu góða fyrir þær konur sem koma langt að. Fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri sinnir öllu Norðurlandi og einnig hafa konur komið frá Austurlandi. Engar skipulagðar fæðingar eru í Þingeyjarsýslum, á norðanverðum Tröllaskaga og á Norðvesturlandi. „Þetta er mjög streituvaldandi ástand fyrir konur sem koma langt að, sem bætir ofan á tilhlökkun og kvíða sem fylgir óneitanlega fæðingunni. Þessir hlutir eru þeir sem reynast erfiðastir fyrir barnshafandi konur sem koma langt að og sem búa hinumegin við fjöll sem lokast oft á tíðum á vetrum. Sá þáttur veldur mestri streitu hjá þeim konum og það er ekki gott fyrir barnshafandi konur að búa við slíka óvissu,“ segir Ingibjörg Hanna.Björgunarsveitir þurftu að hjálpa sjúkrabílum með barnshafandi mæður yfir hálfófærar heiðar og vegi.Vísir/Auðunn„Þurfum að bæta þjónustu við konur sem koma langt að“ Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, segir það skipta máli að konur sem búa langt frá fæðingarþjónustu finni samt fyrir öryggi við lok meðgöngu. „Fæðingarþjónusta hefur verið lögð af víða vegna þess að það er ekki hægt að manna vaktir til að sinna fæðingum sem skyldi. Heilbrigðisþjónusta sem þessi er að verða tæknilegri og miðlægari. Af þeim sökum verðum við að búa til umgjörð sem tryggir fólki jafnræði þegar það þarf að nota þjónustuna. Konan á Vopnafirði nýtur ekki sama jafnræðis og konan á höfuðborgarsvæðinu, en hún verður að fá stuðning til að sækja þá þjónustu sem hún þarf á að halda,“ segir Sigríður Ingibjörg. Undir þetta tekur Ingibjörg Hanna og bendir á að fá úrræði séu til fyrir barnshafandi mæður þegar kemur að því að fá gistingu á Akureyri þegar þær bíða fæðingar. „95 prósent fæðinga eiga sér stað á fjögurra vikna tímabili meðgöngu. Erfiðlega getur gengið fyrir barnshafandi konur að skipuleggja þann tíma. Þessi óvissa einnig getur haft áhrif á líkamlega heilsu kvenna. Við þurfum að búa konum, sem koma langt að, betri aðstöðu.“
Tengdar fréttir 75 milljónir í síðdegishressingu Foreldrar munu greiða 178,5 krónur á dag fyrir hollan bita síðdegis á Frístundaheimilum borgarinnar á meðan leikskólabörnum eiga að duga 280 krónur fyrir fullt fæði. 18. desember 2014 08:15 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira
75 milljónir í síðdegishressingu Foreldrar munu greiða 178,5 krónur á dag fyrir hollan bita síðdegis á Frístundaheimilum borgarinnar á meðan leikskólabörnum eiga að duga 280 krónur fyrir fullt fæði. 18. desember 2014 08:15