Nýtt útspil í læknadeilunni Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 17. desember 2014 19:13
Forystumenn ríkisstjórnarinnar funduðu með formanni samninganefndar ríkisins í læknadeilunni og sáttasemjara í dag. Samninganefndin metur nú næstu skref eftir að læknar komu með nýtt útspil á fundi í Karphúsinu í gær. Einhver þíða virðist komin á milli deiluaðila en ríkissáttasemjari hefur boðað bæði almenna lækna og skurðlækna á fund á morgun. Ráðherranefnd um efnahagsmál kom saman til fundar í forsætisráðuneytinu í dag. Í nefndinni sitja Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Aðrir ráðherrar sitja fundinn eftir því hvert umræðuefni er en í dag mætti Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, á fundinn en umræðuefnið var læknadeilan. Hann vildi lítið tjá sig um fundinn en sagðist vonast til að deilan leysist fyrir jól. Ráðherranefndin er stefnumótandi og í forystu varðandi samskipti við aðila vinnumarkaðarins. Á fund nefndarinnar í dag mættu Magnús Pétursson ríkissáttasemjari og Gunnar Björnsson formaður samninganefndar ríksins. Svo virðist sem einhver hreyfing sé komin á málið. Samninganefndir ríksins og Læknafélagsins funduðu í Karphúsinu í gær eftir vikulangt hlé og ætla að hittast aftur í fyrramálið. Þá funduðu skurðlæknar í Karphúsinu í dag og ætla að funda aftur klukkan þrjú á morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu lagði samninganefnd Læknafélagsins í gær fram einhverskonar útspil sem samninganefnd ríksins er þessa stundina að meta. Gera má ráð fyrir að þær hugmyndir hafi verið ræddar á fundi ráðherranefndarinnar í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu felst í þeim að gerður verður styttri kjarasamningur en áður hefur verið rætt um og svo einhverskonar útfærsla á því hvernig launahækkanir verða færðar inn í launatöflur.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira