„Læknar eru búnir að fá nóg“ Hjörtur Hjartarson skrifar 3. október 2014 19:30
Flótti lækna frá landinu verður ekki stöðvaður nema launakjör þeirra verði bætt, segir formaður samninganefndar lækna. Þriggja prósenta launahækkun eins og læknum bjóðist nú dugi ekki til að sporna við þeirri þróun. Fátt bendir til þess að unnt sé að forðast að verkfall skelli á, 27.október næstkomandi. Mikið ber í milli hjá deiluaðilum og hafa engir fundir verið boðaðir. Rafræn kosning um verkfallsaðgerðir standa nú yfir hjá Læknafélagi Íslands og Skurðlæknafélagi Íslands. Niðurstöðu úr þeim kosningum er að vænta í næstu viku. Formaður samninganefndar lækna á ekki von á öðru en læknar samþykki að boða til verkfalls. „Ég geri fastlega ráð fyrir því. Ég er bjartsýn á að þeir samþykki þessa beiðni þó að það sé okkur ekki ljúft að fara í verkfall,“ segir Sigurveig Pétursdóttir, skurðlæknir og formaður samninganefndar lækna. Sigurveig segir að takmarkað umboð samninganefndar ríkissins til að mæta kröfum lækna torvelda samningaviðræður. Fast sé haldið í þá stefnu stjórnvalda sem sett var í upphafi árs að miða eigi við 2,8 prósenta hækkun hjá opinberum starfsmönnum. Þau takmörk séu hinsvegar fokin út í veður og vind og forsendur fyrir slíkum samningum löngu brostnar. „2,8-3 prósent hækkun duga ekki því við vitum að það er læknaflótti frá landinu og við verðum að sporna við því. Það verður ekkert gert öðruvísi en að hækka laun.”„Hvernig þyrfti tilboð ríkissáttasemjara að hljóða til þess að þið mynduð skrifa undir?”„Ég er nú ekki tilbúin til að svara þessu í dag. Við viljum bíða þar til atkvæðagreiðslu er lokið og svo getum við séð til.“Sigurveig segir að langtímamarkmið lækna sé að ná upp í svipuð laun og kollegar þeirra á Norðurlöndunum. „Í hinu fullkomna landi með fullkomnum efnahag, þá erum við með sömu laun og löndin í kring. Þá erum við samkeppnishæf og málið leyst,“ segir Sigurbjörg. „En eruð þið að fara fram á það?“„Við erum ekki að fara fram á það.“ Samkvæmt heimildum fréttastofu vilja læknar miða sig við svokölluðu BHM samninga sem gerðir voru í vor. Þar var í flestum tilfellum samið um 8-10 prósenta launahækkun. Seðlabankastjóri sagði í fréttum í vikunni að hækka þyrfti stýrivexti ef almenn launahækkun yrði meiri en 3,5 prósent. „Læknar eru búnir að fá alveg nóg. Læknar verða þreyttir eins og annað fólk, þeir vinna mikið og það er óhóflegt vinnuálag. Eftir því sem læknur fækkar, þeim mun meira eykst vaktabyrðin á hvern og einn sem og fjöldi sjúklinga. Víða er þetta komið úr hófi og þessvegna verður að spyrna við fótunum. Við viljum ekki læknislaust land,“ segir Sigurbjörg.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira