„Tímaspursmál hvenær alvarlegra slys á sér stað“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 4. júní 2014 15:45 „Þessir bílstjórar fara þá í gegn um hverfið um Hamrahlíð og Lönguhlíð sem er einstaklega slæmt þar sem að þetta eru akkúrat þær götur sem börn fara mikið yfir á leið úr og í skóla.“ „
Því miður get ég ekki sagt að þetta slys komi mér mikið á óvart. Umferðarhraðinn í Lönguhlíð er allt of mikill og ef ekkert verður að gert er því miður aðeins tímaspursmál um hvenær alvarlegra slys á sér stað.“ Þetta segir Friðrik Hjörleifsson, fulltrúi foreldra í skólaráði Hlíðaskóla, í ljósi slyss sem átti sér stað í Lönguhlíð í gær, þar sem ekið var á unglingspilt á hjóli. Hann segir slysið því miður ekki einsdæmi og því séu foreldrar barna í Hlíðaskóla áhyggjufullir. Friðrik segir umferðarslys tíð á þessu svæði en samkvæmt upplýsingum frá Umhverfis- og skipulagssviði eru einungis 25 prósent þeirra sem aka um svæðið á löglegum hraða. Allar götur í Hlíðahverfi eru með þrjátíu kílómetra hámarkshraða nema Langahlíð þar sem hámarkshraðinn er fimmtíu kílómetrar. „Hverfið virðist því miður oft vera notað af bílstjórum til að stytta sér leið og ef til vill að sleppa við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar,“ segir Friðrik sem segir það afskaplega slæmt því þetta eru þær götur sem börn fara mikið yfir á leið í og úr skóla. Hann segir að ýmislegt megi bæta í hönnun þessara gatna, en báðar séu þær of greiðfærar. Hann hefur stungið upp á að hámarkshraðinn verði lækkaður í þrjátíu kílómetra en þó sé hann ekki viss um að ökumenn myndu fylgja því. „Ég hef haft samband við lögregluna og óskað eftir tíðari hraðamælingum í Hamrahlíðinni, þeir hafa orðið við því í nokkur skipti en hafa einnig bent á að aukið eftirlit muni ekki laga ástandið í Hlíðunum, til þess þurfi breytingar á götunum vegna þess hversu greiðfærar og breiðar þær eru.“ Þar sem aukið hraðaeftirlit hefur ekki borið árangur var Friðriki bent á að hafa samband við Reykjavíkurborg og málið á þeirra borði í dag. „Við erum bara virkilega áhyggjufull,“ segir Friðrik.
Tengdar fréttir Ekið á unglingspilt á hjóli Slysið átti sér stað í Lönguhlíð í Reykjavík, framan við Sunnubúð. 3. júní 2014 15:48 Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Sjá meira
Ekið á unglingspilt á hjóli Slysið átti sér stað í Lönguhlíð í Reykjavík, framan við Sunnubúð. 3. júní 2014 15:48