Innlent

Hékk framan á vélarhlífinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
vísir
Lögreglumenn á Suðurnesjum voru við umferðareftirlit í vikunni þegar þeir komu auga á bifreið, sem ekið var um götur Keflavíkur og hékk strákur framan á vélarhlífinni.

Lögreglan stöðvaði bílinn snarlega og ræddu alvarlega við piltinn og bílstjórann sem einnig er ungur að árum.

Að sögn lögreglunnar sáu piltarnir mjög eftir þessu uppátæki. Þá var haft samband við foreldra piltanna, sem kunnu lögreglu þakkir fyrir að hafa stöðvað þetta glæfralega háttarlag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×