Fyrsta íslenska viskýið á leið á markað Heimir Már Pétursson skrifar 7. nóvember 2014 14:09 Fyrsta íslenska viskýið.
Fyrsta íslenska viskýið er komið á flöskur og fer í dreifingu á næstunni. Framkvæmdastjóri Eimverks sem framleiðir viskýið segir fyrirtækið ætla sér stóra hluti í framtíðinni og hefur nú þegar lagt í 12 ára viskí sem verður tilbúið árið 2023. Viský vekur oftast hugrenningartengsl við Skotland og Írland sem sennilega eru stærstu framleiðslulönd á þessum guðaveigum. En í Skotlandi eru t.d. fluttar út 40 viskýflöskur á hverri sekúndu sem líður allan sólarhringinn. En einhvers staðar byrjuðu þessir stórframleiðendur og nú hefur íslenska nýsköpunarfyrirtækið Eimverk, sem nú þegar framleiðir vinsælt Gin, tappað fyrsta viskýinu, Flóka, á flöskur. Haraldur Þorkelsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir landsmenn fá fyrsta tækifærið til að bragða á framleiðslunni á sýningunni Matur og drykkur sem fram fer í Laugardalshöll um helgina. Íslenskt viský, það hljómar einhvern veginn ótrúlega, þurfa menn ekki að láta það liggja í nokkurn tíma áður en það er sett á flöskur? Jú, viský þarf að liggja í eyk í helst þrjú ár og þetta tekur allt góðan tíma. En við erum núna að tappa á af fyrstu tunnunni í þessum mánuði eftir um það bil fimm ára þróunarstarf,“ segir Haraldur. „Það er bara furðulegt að þetta hafi ekki verið gert á Íslandi fyrr. Íslenska byggið og náttúran koma sterk inn og þetta virkar ótrúlega vel,“ segir Haraldur. Flóki minni helst á hálanda viskýið skorska. Engu að síður sé bragðið af Flóka einstakt. Íslenska byggið sem vaxi við köld skilyrði sé kraftmikið og gefi gott og kryddað bragð. Til að byrja með er Flóka viskýið ungt en Eimverk stefnir á framleiðslu á eldra viskýi. „Við endum með tólf ára viský já. En í dag erum við að fara af stað með takmarkað upplag. Það eru um 500 flöskur í mánuði sem við köllum Flóki Young Malt,“ segir Haraldur. Tólf ára Flóki komi síðan á markaðinn árið 2023. Til að byrja með verður Flóki seldur í Fríhöfninni og á völdum veitingastöðum í Reykjavík „Eins erum við með dreifingaraðila í útlöndum sem bíða spenntir. En þetta verður sent til Þýskalands, Danmerkur, Ítalíu og bandaríkjanna á næsta ári,“ segir Haraldur. Þetta nýjasta viský á heimsmarkaðnum verði í hærri kantinum hvað verðlag snerti en sanngjarnt samt.Hægt er að hlusta á viðtalið í heild hér.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira