Vill gæslu í kirkjunni á meðan sveitaböll fara fram Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 2. nóvember 2014 20:16
Skemmdarverk voru unnin á kirkjugarði Akureyjarkirkju í Landeyjum um helgina eftir sveitaball í Njálsbúð. Legsteinar voru sparkaðir niður, krossar skekktir, ljóskastari brotin og lýsing kirkjunnar stórskemmd. Akureyjarkirkja er falleg sveitakirkja, rúmlega 100 ára gömul í Vestur-Landeyjum og stendur stein snar við félagsheimilið Njálsbúð. Þar var haldið „Halloween-ball“ á föstudagskvöld og einhverjir hafa þá ákveðið að fara í kirkjugarðinn og fremja skemmdarverk þar. Haraldur Júlíusson, kirkjuvörður á varla til orð til að lýsa yfir hneykslun sinni á skemmdarverkunum en legsteinar voru sparkaðir niður voru krossar skekktir, lýsingin að kirkjunni var skemmd og einn ljóskastari brotin. „Það er ótrúlegt að fólk skuli leggja sig niður við að óvirða helgidóma eins og kirkjur og kirkjugarða, sem er friðað en svona er lífið“, segir Haraldur og bætir við þegar hann er spurður hvort skemmtistaður og kirkjugarður fari saman. „Ég veit það ekki, það er nú ágætis bil hérna á milli, mér finnst að fólk þurfi ekki að leggjast á kirkjugarðinn þó að það sé að skemmta sér í húsi við hliðina. Haraldur er ósáttur við að hafa ekki verið látin vita af sveitaballinu og hann vill að gæsla verði í kirkjunni og kirkjugarðinum þegar skemmtanir eru í Njálsbúð. „Já, ég tel að það þurfi að vera gæsla og mér finnst alveg lágmark að umsjónarmaður kirkjunnar sé látin vita ef það á að vera einhver dansleikur í Njálsbúð. Eins íbúar hérna í næstu húsum, það eru vandræði þegar fólk fær þetta á sig fyrirvararlaust“, segir hann. En hvaða skilaboð á Haraldur til skemmtaraargsins eða skemmdarvarganna ? „Bara að gera þetta ekki aftur, virða frið annarra og sýna kirkjum og kirkjugörðum virðingu“.Lögreglan á Hvolsvelli vill biðla til allra sem hugsanlega hafa einhverjar upplýsingar um hver eða hverjir hafi verið að verki í kirkjugarðinum að koma upplýsingum til sín í síma 488 4110.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Sjá meira