Auðmjúkur Ari Jakob Bjarnar skrifar 14. nóvember 2014 12:30 Ari boðar enga byltingu: "Ég lít ekki svo á að nú sé runnið upp árið eitt í íslensku leikhúsi - Þjóðleikhúsið 64 ára gömul stofnun.“
Fyrir stundu tilkynnti menntamálaráðherra um skipan nýs Þjóðleikhússtjóra og varð Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri hússins, fyrir valinu. Fréttastofa náði tali af Ara rétt fyrir fréttir. „Ég er auðvitað fullur auðmýktar gagnvart þessu starfi og meðvitaður um það að ég er hér að ganga til starfa sem Þjóðleikhússtjóri í mjög merkilegri stofnun og mikilvægri fyrir íslenskt samfélag. Þjóðleikhúsið er auðvitað í eigu íslensku þjóðarinnar. Ég er mjög auðmjúkur þegar ég tek við þessu.“Nú hefur þú starfað um árabil sem framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins og þekki því hvern krók og kima og rekstrarstöðu hússins. Þú gengur þá ekki gruflandi að þessu verkefni? „Já, ég get ekki skotið mér á bak við það að hafa ekki vitað hver rekstrarstaða Þjóðleikhússins er,“ segir Ari kíminn. „En, ég hef bæði starfað sem leikari, leikstjóri og framleitt leiksýningar. Og svo hef ég líka séð um að framleiða leiksýningar hinum megin frá, út frá rekstri, sem framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins. Þannig að ég þekki leikhússtarfsemi, vil ég meina, alveg ofan í kjölinn.“Hefðbundin spurning og óhjákvæmileg við tækifæri sem þessi er að spyrja hvort áherslur muni breytast? „Já, þær munu eflaust breyst. Það verður nú ekki nein bylting. Ég lít ekki svo á að nú sé runnið upp árið eitt í íslensku leikhúsi heldur er Þjóðleikhúsið 64 ára gömul stofnun og ég held að á tímum Tinnu Gunnlaugsdóttur, undanfarin tíu ár, hafi Þjóðleikhúsið verið býsna vel rekið. Og það eru margar mjög góðar og merkilegar áherslur sem Tinna hefur lagt í sínu starfi; hún hefur reynt að efla íslenska leikritun, efla hlut kvenna og lagt mikla áherslu á barnastarf. Ég vil halda þessu öllu áfram. Ég vil líka færa Þjóðleikhúsið nær landsbyggðinni eins og hægt er. Mér finnst því miður að við höfum ekki getað komið nógu mikið út á landi. Ég vil auka það. Svo vil ég segja; ég hef einfaldan smekk – ég vil aðeins setja upp frábærar leiksýningar,“ segir Ari Matthíasson, nýr Þjóðleikhússtjóri.Ingimundur Sigfússon segir ekkert fjær sér en deilur og átök.Ingimundur hættir í sátt og samlyndi Við svo búið var Ari rokinn, hann þurfti sem framkvæmdastjóri að kynna nýja fjárhagsáætlun Þjóðleikhússins. Víst er að í mörg horn er að líta við þessi tímamót. Finna þarf nýja framkvæmdastjóra og þá greindi Vísir frá því í gær að Ingimundur Sigfússon hefði sagt sig frá Þjóðleikhúsráði, sem formaður þess, en ráðið fundar í dag. Vísir náði tali af Ingimundi í morgun og innti hann eftir ástæðum þess að hann sagði af sér sem formaður Þjóðleikhúsráðs? „Ég ákvað að hætta, ákvað það á mánudaginn var. Þá setti ég inn í ráðuneytið mína afsögn. Þetta er nú bara vegna þess að ég er búinn að vera þarna í meira en sjö ár og mér finnst það tilhlýðilegt að ég hætti núna þegar nýr leikhússtjóri tekur við. Þá komi nýr maður í staðinn fyrir mig. Það er nú bara ástæðan,“ segir Ingimundur. Hann segist hafa haft mikla gleði af veru sinni í ráðinu. „Og mun, útaf fyrir sig, sakna þess. En, þetta er bara rétti tíminn fyrir mig og ég verð að hugsa um það.“ Ingimundur segir engan ágreining hafa orðið þess valdandi að hann ákvað að gefa ekki kost á sér áfram: „Enginn ágreiningur. Ekkert verra sem ég veit en standa í ágreiningi og deilum. Það er mér mjög lítt að skapi, það er ekkert svoleiðis.“
Tengdar fréttir Vandræðagangur við skipan þjóðleikhússtjóra Margir innan leikhúsheimsins furða sig á því hvernig á því stendur að ekki er búið að skipa í stöðu þjóðleikhússtjóra en umsóknarfrestur rann út 1. september. 12. nóvember 2014 10:28 Ari nýr þjóðleikhússtjóri Menntamálaráðherra hefur skipað í stöðu þjóðleikhússtjóra. 14. nóvember 2014 11:29 Formaður þjóðleikhúsráðs segir upp störfum Ólga er innan leikhússins, meðal annars hversu langan tíma hefur tekið að skipa nýjan þjóðleikhússtjóra. 13. nóvember 2014 16:50 Tinna aftur á leiksviðið Fyrsti samlestur á Sjálfstæðu fólki var í morgun. Þorleifur Örn Arnarson leikstjóri mun leikstýra jólasýningu Þjóðleikhússins. 14. október 2014 13:13 Tíu sóttu um starf þjóðleikhússtjóra Skipað er í stöðuna til fimm ára og mun sá útvaldi hefja störf þann 1. janúar næstkomandi. 3. september 2014 16:02 Krísa innan Þjóðleikhússins Upp er komin flókin og erfið staða innan Þjóðleikhússins vegna hugsanlegra hagsmunatengsla Tinnu Gunnlaugsdóttur Þjóðleikhússtjóra en til stendur að hún taki að sér tvö hlutverk á sviðinu þar innan tíðar. 11. október 2014 07:00 Mest lesið Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Erlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent Fleiri fréttir Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Sjá meira
Vandræðagangur við skipan þjóðleikhússtjóra Margir innan leikhúsheimsins furða sig á því hvernig á því stendur að ekki er búið að skipa í stöðu þjóðleikhússtjóra en umsóknarfrestur rann út 1. september. 12. nóvember 2014 10:28
Ari nýr þjóðleikhússtjóri Menntamálaráðherra hefur skipað í stöðu þjóðleikhússtjóra. 14. nóvember 2014 11:29
Formaður þjóðleikhúsráðs segir upp störfum Ólga er innan leikhússins, meðal annars hversu langan tíma hefur tekið að skipa nýjan þjóðleikhússtjóra. 13. nóvember 2014 16:50
Tinna aftur á leiksviðið Fyrsti samlestur á Sjálfstæðu fólki var í morgun. Þorleifur Örn Arnarson leikstjóri mun leikstýra jólasýningu Þjóðleikhússins. 14. október 2014 13:13
Tíu sóttu um starf þjóðleikhússtjóra Skipað er í stöðuna til fimm ára og mun sá útvaldi hefja störf þann 1. janúar næstkomandi. 3. september 2014 16:02
Krísa innan Þjóðleikhússins Upp er komin flókin og erfið staða innan Þjóðleikhússins vegna hugsanlegra hagsmunatengsla Tinnu Gunnlaugsdóttur Þjóðleikhússtjóra en til stendur að hún taki að sér tvö hlutverk á sviðinu þar innan tíðar. 11. október 2014 07:00