UB40 með tónleika í Hörpu í september 2. júlí 2014 14:00 UB40 tryllir lýðinn í Hörpu í september. Mynd/Einkasafn
Hljómsveitin UB40 heldur tónleika hér á landi, nánar tiltekið í Hörpu, þann 19. september næstkomandi. Í janúar 2014 tilkynntu meðlimir hljómsveitarinnar að þeir myndu koma saman á árinu til að taka upp nýja plötu og hefja tónleikaferð um heiminn með upprunalegri skipan hljómsveitarinnar.UB40 var ein sú vinsælasta í heiminum á níunda áratugnum og í upphafi þess tíunda og er meðal allra söluhæstu listamanna popptónlistarsögunnar með yfir 70 milljónir seldra platna. Sveitin á einnig fjölda laga sem náð hafa á topp vinsældalista um allan heim, þeirra þekktust eru sjálfsagt lögin, Red Red Wine, I´ve Got You Babe, I Can´t Help Falling in Love og Food for Thought. UB40 var stofnuð árið 1979 og vakti fljótlega athygli í heimalandinu, Bretlandi en sveitin hefur starfað síðan þá með hléum og með breytilegri meðlimaskipan. Allan þennan tíma hefur hljómsveitin gefið út plötur sem hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda og aðdáenda. Síðasta plata sveitarinnar, Getting Over The Storm kom út árið 2013 og fékk hún fimm stjörnu dóma hjá bresku tónlistarpressunni. Tónleikarnir fara fram í Eldborgarsal Hörpu þann 19. september og hefst miðasala þann 3. júlí á midi.is en einungis er um eina tónleika að ræða.
Tónlist Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Terry Reid látinn Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira