„Skemmtiferðarskipið heitir Norwegian Pearl og er fyrsta skemmtiferðaskipið sem ég hef komið í, ég fékk sjokk yfir stærðinni og leið eins og ég væri í völundarhúsi,“ segir Ragnar um upplifunina en um þrjú þúsund manns voru á skipsfjöl.
Ragnar þurfti að bregða sér í hlutverk aðalsöngvara og aðalgítarleikara sænsku rokkhljómsveitarinnar því fyrir skömmu fékk Daniel Gildenlöw, söngvari sveitarinnar, lífshættulega streptókokkasýkingu-a og hefur legið á gjörgæslu síðan.

Sveitin fékk þó bara einn dag til þess að æfa fyrir ferðalagið því Ragnar var á Íslandi að spila með Sign skömmu fyrir ferðalagið. „Við læstum okkur inni í herbergi og æfðum allt kvöldið fyrir fyrstu tónleikana, minnisbókin mín var orðin stútfull af textum og minnispunktum.“

Ragnar og félagar á land á nokkrum eyjum sem tilheyra Bahamaeyjum og upplifðu ýmis ævintýri. „Það gerðist margt skemmtilegt í landi eins og einn daginn hoppuðum við upp í hálfónýtan leigubíl og leigubílstjórinn var að drekka bjór þegar hann hleypti okkur inní bíl og sagði okkur með svakalegu stolti að kalla sig „Party Machine“. Mér fannst þetta ógeðslega fyndið, þangað til við mættum lögreglubíl en fulli bílstjórinn gaf allt í botn og brunaði fram úr löggunni, ég hélt að ég yrði ekki eldri en svo sá ég lögguna brosa,“ segir Ragnar um ævintýrið á Bahama-eyjum.