Þræll í hlekkjum andlit negrasálmamessu Jakob Bjarnar skrifar 13. nóvember 2014 10:17 Ýmsir velta því fyrir sér hvort greina megi kynþáttafordóma í kynningu á tónleikunum, en séra Svavar Alfreð segir að önnur framsetning væri fölsun á sögunni.
Greina má kurr á samfélagsmiðlum, auglýsing þar sem vakin er athygli á tónleikum í Akureyrarkirkju á sunnudaginn, kór Akureyrarkirkju ásamt hljómsveit mun flytja negrasálma, hefur orkað stuðandi á ýmsa. Bæði er að fólk er viðkvæmt fyrir orðinu „negri“ og þá ekki síður þykir mynd á auglýsingunni; þræll í hlekkjum, vera á mörkum þess að teljast ósmekkleg. Víst er að samfélagið er mjög á tánum gagnvart öllu því sem hugsanlega má túlka sem fordóma og skemmst er að minnast þess þegar talsvert upphlaup varð vegna þess að kaffihús við Laugarveginn var með styttu af svörtum manni sem sitt einkennistákn. Það endaði með því að þau þar urðu að fjarlægja styttuna. Séra Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, segir þetta náttúrlega orð sem einu sinni þótti sjálfsagt en sé það ekki lengur. „Júði, til dæmis, þykir ekki gott í dag en það er notað í Passíusálmunum. Lýsandi fyrir það hvernig orð geta breyst og merking þeirra. Ég veit að fólkið í kórnum var búið að leita að öðru orðin. En, það er spurning hvaða hugtök við eigum önnur? Myndin af þræli á sér svo þá tengingu að mikið af þessum sálmum urðu til þegar þetta fólk, þrælarnir, bjó við þessar ömurlegu aðstæður,“ segir séra Svavar Alfreð. Og hann spyr: „Þeldökkrasálmar? Þrælasálmar? Ég veit það ekki. Einu sinni var ágætt hæsta stigið. Nú er svo ekki. Tungumálið er lifandi og menningin. Auðvitað hefði verið betra að geta notað eitthvað annað orð, en þá erum við farin að falsa söguna. Negri hefur verið notað sem skammaryrði. Svo var um orðið homma en nú eru menn stoltir af því að vera hommar. Þetta er snúið.“ Sóknarpresturinn vekur á því athygli að fólk hafi notaði tónlistina til að kveikja með sér vonir og syngja í sig móð. „Tónlistin hreinlega bjargaði lífi fólks. Ég held að það séu nú tengingarnar. Mér finnst það gott að minna á þennan bakgrunn þessarar tónlist. Sem er óaðskiljanlegur hluti, vilji maður skilja þessa tónlist. Og gott nú á dögum, þegar tónlistarkennarar eru í sinni baráttu, að minna á hversu mikið lífsspursmál tónlistin getur verið.“ Séra Svavar Alfreð segist ákaflega stoltur af kórnum og hann hlakkar til tónleikanna. Og telur víst að hann og kórinn muni halda sínu striki með að kynna tónleikana með þessum hætti.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Sjá meira