Hrekkti eiganda pallbíls sem lagði í fjögur stæði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. október 2014 18:22 Myndirnar sem Guðrún Magnea birti á Facebook á föstudaginn. Myndir/Birgir Már Sigurðsson „
Vonandi ertu ekki jafn lélegur í rúminu og þú ert að leggja í stæði,“ voru skilaboðin sem biðu eiganda pallbíls á bílastæðinu fyrir aftan Landakotsspítala á föstudaginn. Hrekkjalómurinn á bak við skilaboði var Guðrún Magnea Guðnadóttir. „Ég legg þetta ekki í vana minn. Þetta er í fyrsta skipti sem ég set svona skilaboð á bíl,“ segir Guðrún Magnea í samtali við Vísi. Hún segir oft hafa verið rætt í vinahópnum hversu illa fólk leggi stundum bílum sínum. Vinkona hennar hafi í eitt skipti skilið eftir sömu skilaboð á bíl sem hafði verið lagt illa. „Mér fannst það svo fyndið að ég notaði það segir Guðrún Magnea.“ Guðrún tók mynd af umræddum bíl og skilaboðunum líkt og sjá má hér að ofan. „Stundum leggur fólk aðeins upp á kant eða í tvö stæði. En þessi tók fjögur stæði,“ segir Guðrún Magnea. Í rauninni hafi aðeins vantað að eitt stæðanna væri ætlað fötluðum. Þær sáu svo þegar eigandi bílsins sneri aftur.„Hann var ekki ánægður,“ segir Guðrún Magnea og vonar að skilaboðin verði til þess að viðkomandi ökumaður vandi betur til verka næst þegar hann leggur bíl sínum. Margir hafa deilt mynd Guðrúnar á Facebook og hlæja flestir að uppátæki hennar. Þó eru einhverjir sem gagnrýna það og benda á kaldhæðnina sem felst í því að Guðrún Magnea þekkir vel til þegar kemur að pallbílum. „Pick-up er staðalbúnaður á mínu heimili,“ segir Guðrún Magnea hlæjandi. „Ég er mikið í þessu umhverfi og þekki marga sem eiga svona bíla.“ Hún þekkir því vel hve erfitt getur verið að leggja svo stórum bílum. „Við höfum upplifað alls konar skemmtilegar uppákomur í sambandi við það. Þetta er samt einstakt,“ segir Guðrún Magnea. Hún vonar að ökumaðurinn taki hrekknum ekki mjög alvarlega. Þá á hún ekki von á því að fara að hrekkja fleiri ökumenn með skilaboðum. „Þetta var bara einhver föstudagshúmor í okkur stelpunum. Það var ekki hægt að sleppa því.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira