Alvarleg hætta getur skapast á Landspítalanum Ásgeir Erlendsson skrifar 19. október 2014 19:02
Framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum segir alvarlega hættu geta skapast á spítalanum ef loka þurfi skyndilega deildum vegna sýkinga eins og raunin var á dögunum. Plássleysið sé slíkt að erfitt yrði að bregðast við ef stórt slys skyldi bera að höndum. Nýlega kom upp Mósasýking á einni af lyflækningadeildum Landspítalans. Sýkingin er afar erfið viðureignar og hættuleg veiku fólki. Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga, segir spítalann illa í stakk búinn til að loka deildum eins og nauðsynlegt er þegar slíkar sýkingar koma upp. Til dæmis hafi ekki verið unnt að loka umræddri deild samstundis þegar tilvikið uppgötvaðist. „Það sem er alvarlegt við þetta mál er að ein af okkar aðal lyflækningadeildum verður óstarfhæf og það þýðir að spítalinn er sprunginn. Við höfum ekki pláss fyrir sjúklingana. Við megum ekki gleyma því að stór hluti sjúklinganna sem leita til spítalans á hverjum einasta degi leggst inn á lyflækningadeildirnar þannig að þegar ein slík deild gengur úr skaftinu vegna sýkingar af þessu tagi þá er spítalinn algjörlega sprunginn.“ Ólafur segir að atvik sem þessi geti haft alvarlegar afleiðingar. „Það sem getur gerst á aðeins örfáum dögum við þessar aðstæður er að bráðamóttakan getur farið að teppast og af hverju er það? Jú þessir lyflæknisfræðilegu sjúklingar ef maður má leyfa sér að nota slík orð, það hefur ekki náðst að leggja þá inn og þá er erfiðara að taka á móti stórum slysum fyrir vikið. Auðvitað er þetta ákveðinn spádómur því við erum ekki í þessari stöðu í dag. Við höfum áhyggjur af þessu þegar heil deild gengur úr skaftinu. Þá er hreinlega ekki pláss á spítalanum ef stórt slys skyldi bera að höndum. Við þurfum nýtt húsnæði þar sem sýkingar eru ólíklegri en þær eru í dag og þar sem við höfum hreinlega meira pláss fyrir sjúklingana.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira