Segja svör um bílafríðindi Dags óljós og spyrja áfram Garðar Örn Úlfarsson skrifar 24. október 2014 07:00 Sótt er að borgarstjóra vegna notkunar á bílum Reykjavíkurborgar á síðasta kjörtímabili. Fréttablaðið/Arnþór
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks vilja að upplýst verði hvort „bílatengdar starfsgreiðslur“ til Dags B. Eggertssonar borgarstjóra hafi „verið skertar í ljósi notkunar hans á bifreiðum í eigu borgarinnar“ þegur Dagur var formaður borgarráðs á síðasta kjörtímabili. Sjálfstæðismenn segja var S. Björns Blöndals, oddvita Bjartrar framtíðar og núverandi formanns borgarráðs, við fyrri fyrirspurn þeirra um notkun á bílum borgarinnar vera „um margt óljóst. Af því megi þó ráða að Dagur hafi notið bílafríðinda á síðasta kjörtímabili í verulegum mæli umfram aðra borgarfulltrúa og án þess að leyfi hafi verið gefið fyrir því á þar til bærum vettvangi. „Í lok svarsins er sérstaklega tekið fram að í starfskostnaði borgarfulltrúa sé ekki gert ráð fyrir kostnaði við rekstur bifreiða, væntanlega í því skyni að réttlæta umrædda notkun borgarfulltrúans á bílum í eigu borgarinnar. Í gildandi samþykkt um starfskostnað borgarfulltrúa kemur hins vegar skýrt fram að starfsgreiðsluupphæðin sé til þess að mæta öllum persónulegum starfskostnaði og þar með séu taldar ferðir innan höfuðborgarsvæðisins,“ benda sjálfstæðismenn á í nýrri fyrirspurn í borgarráði í gær. Þá segjast sjálfstæðismenn hafa bent á þetta misræmi í borgarstjórn í september og spurt hverju það sætti. „Og einnig hvort bílatengdar starfsgreiðslur til borgarfulltrúans hefðu verið skertar í ljósi notkunar hans á bifreiðum í eigu borgarinnar.“ „Jafnframt er sú spurning ítrekuð á hvaða vettvangi ákvörðun um umrædd bílafríðindi var tekin og af hverjum. Þá er einnig óskað eftir nánari upplýsingum um notkun borgarfulltrúans á bifreiðum borgarinnar þegar ekki var um það að ræða að hann væri að sinna starfsskyldum staðgengils borgarstjóra. Brýnt er að skýrar reglur gildi um bílafríðindi kjörinna fulltrúa og að komið verði í veg fyrir notkun á bifreiðum Reykjavíkurborgar án þess að skýr heimild liggi fyrir um slíkt,“ bókuðu sjálfstæðismenn.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira