Bíó og spil fyrir þá sem standa sig vel Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. október 2014 14:29 Sunnulækjarskóli á Selfossi
Nemendur í unglingadeild Sunnulækjarskóla á Selfossi fá umbun fyrir fyrir góða mætingu og hegðun nokkrum sinnum á skólaári. Hermann Örn Kristjánsson, deildarstjóri unglingadeildar, segir að skólinn vilji frekar leggja áherslu á hvatningakerfi en refsingakerfi. „Þeir nemendur sem fá 9 í mætingaeinkunn og eru með lítið af neikvæðum skráningum í skráningarkerfinu Mentor fá þessa umbun. Það er mismunandi hversu oft þetta er yfir veturinn, við vorum með þetta þrisvar sinnum í fyrra og stefnum að því að hafa þetta þrisvar sinnum núna. Fjöldi nemenda sem fær umbun eykst síðan yfir veturinn. Nemendur reyna að ná því marki að fækka neikvæðum skráningum og bæta mætingu,“ segir Hermann í samtali við Vísi. Hann segir misjafnt í hverju umbunin felst í hvert en skólastarfið sé alltaf brotið upp með einhverjum hætti. Það sé oftast þannig að það sé hætt fyrr þann dag sem umbunin er, stundum sé farið í félagsmiðstöðina þar sem er einhver dagskrá, spilastöðvar hafa verið settar upp í skólanum sjálfum og einnig hefur verið farið í bíó. Aðspurður hvort það sé mikil þörf fyrir þetta því nemendur mæti og hagi sér illa segir hann svo ekki vera. „Það má auðvitað velta því upp hvenær er þörf fyrir hvatningu, og deila um hvort þetta sé rétta leiðin eða ekki. Við sjáum einfaldlega að þetta virkar og á þeim forsendum höldum við þessu inni,“ segir Hermann. Þeir nemendur sem fá ekki umbun eru í hefðbundnu skólastarfi. Hermann segir að því miður hafi það aldrei verið svo að allir nemendur deildarinnar hafi fengið umbun. En eru foreldrar sáttir við fyrirkomulagið? „Við höfum ekki fengið neinar kvartanir en við fáum auðvitað fyrirspurnir, sérstaklega frá foreldrum nemenda í 8. bekk sem eru nýir í unglingadeild. Við kynnum þetta mjög vel á haustin svo að þetta ætti ekki að koma á óvart,“ segir Hermann að lokum.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri fréttir „Ég elska að vera hér“ Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Sjá meira