Innlent

Gistiskýlið flytur að Lindargötu 48

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gistiskýlið í Þingholtsstræti hefur verið rekið frá árinu 1970.
Gistiskýlið í Þingholtsstræti hefur verið rekið frá árinu 1970. Vísir/Vilhelm
Gistiskýlið flytur starfsemi sínu frá Þingholtsstræti 25 að Lindargötu 48, á horni Lindargötu og Frakkastígs, mánudaginn 27. október. Gestir fara frá Þingholtsstræti að morgni mánudags en mæta að kveldi á Lindargötu. Starfsemi Gistiskýlisins verður óbreytt og  áfram er gert ráð fyrir um a.m.k. 20 gestum á nóttu. Engum verður vísað frá en undanfarið hafa næturgestir verið um 20-25. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

 

Aðbúnaður í húsnæðinu að Lindargötu er allt annar en í Þingholtsstræti og ekki þarf lengur að hafa gistingu í tveimur húsum eins og verið hefur allt þetta ár ef gestir hafa verið fleiri en 20. Í húsinu er einstaklingsherbergi, þriggja manna, fimm manna og sex manna herbergi. Gistiskýlið í Þingholtsstræti hefur verið rekið frá árinu 1970.

 

Matsalur og setustofa í nýja skýlinu er miklu stærri, meira aðlaðandi og með betri aðstöðu en var í gamla skýlinu að því er segir í tilkynningunni. Nýlega gaf minningarsjóður Lofts Gunnarssonar skýlinu þægileg rúm og munu þau vera á Lindargötu ásamt öllum öðrum húsgögnum og munum frá Þingholtsstræti.

 

Húsið er á þremur hæðum, gisting er á fyrstu og annarri hæð en eldhús, setustofa og matsalur á þriðju hæð. Góð sturtuaðstaða er á fyrstu tveimur hæðunum og salerni á öllum hæðum.  Lyfta er í húsinu til að fara milli hæða.

 

Allar lagnir í húsinu hafa verið endurnýjaðar og brunaútgangar og brunaviðvörunarkerfi eins og best verður á kosið. Lögð verður áhersla á samvinnu þeirra sem koma að málefnum utangarðsfólks en það er Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða sem þjónustar hópinn.  

 

Samhjálp rekur Gistiskýlið samkvæmt þjónustusamningi við Reykjavíkurborg. Auk þeirra sem koma að Gistiskýlinu starfa Borgarverðir, starfsfólk Dagseturs og nýtt vettvangs- og stuðningsteymi Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða með utangarðsfólki. Vettvangs- og stuðningsteymið er hópur sérfræðinga sem mætir utangarðsfólki á þeirra forsendum, veitir því faglega ráðgjöf og meðferð sem hentar hverjum og einum.

 

Kostnaður við breytingarnar á húsnæðinu við Lindargötu er 110 milljónir króna. Áætlaður rekstrarkostnaður Gistiskýlisins á þessu ári er 66 milljónir króna.  Utangarðsfólk býr almennt við alvarlegan heilsubrest, ofneyslu áfengis- og vímuefna, sértæka sjúkdóma, geðfötlun og  geðræn vandamál að því er segir í tilkynningunni frá borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×