Kostnaðarsöm hreinsun vegna flugelda Atli Ísleifsson skrifar 30. desember 2014 13:28 Heildarinnflutningur á flugeldum er að aukast aftur og er um 502 tonn að þessu sinni. Vísir/Vilhelm
Innflutningur á flugeldum fyrir áramótin núna er 100 tonnum meiri en í fyrra eða 502 tonn. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að búist sé við slyddu og því ekki líklegt að svifryksmengun verði mikil en hávaðinn verði sá sami. „Borgarbúar eru hvattir til að huga vel að gæludýrum sínum, forðast hávaðamengun og fara með flugeldarusl á endurvinnslustöðvar.“ Í tilkynningunni segir að svifryk hafi átta sinnum farið yfir sólarhrings-heilsuverndarmörkin á árinu 2014. „Sólarhringsstyrkur svifryks við Grensásveg var langt undir mörkum á fyrsta degi þessa árs eða 17,9 míkrógrömm á rúmmetra. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Um áramótin er búist við hægri breytilegri átt, slyddu og hitastigi um frostmark. Ekki eru miklar líkur á svifryksmengun á nýársnótt eins og veðurspáin lítur út nú.“ Heildarinnflutningur á flugeldum er að aukast aftur og er um 502 tonn að þessu sinni, samkvæmt upplýsingum frá Oddi Ólafssyni varðstjóra hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Árið 2013 voru 406 tonn flutt til landsins, árið 2012 voru 648 tonn og árið 2011 575 tonn. Leyfilegt er að selja afganga af flugeldum sem fluttir voru inn 2012 og 2013.“Flugeldum fylgir ruslBorgarbúum er bent á að hreinsun borgarlandsins sé kostnaðarsöm og því séu þeir eindregið hvattir til að láta ekki sitt eftir liggja þegar gamla árið er kvatt og því nýja fagnað með flugeldum. „Mikið magn flugeldaleifa fellur til og þarf að safna þeim saman og skila á endurvinnslustöðvar Sorpu. Púður er einungis 10% af heildarþyngd flugelda, restin er aðallega pappi og leir. Slíkur pappír hentar alls ekki til endurvinnslu. Ósprungnum flugeldum skal skila í spilliefnagáma á endurvinnslustöðvum Sorpu.HávaðamengunHávaði vegna flugelda verður oft mikill. „Foreldrar ættu að gæta að börnum sínum því þau eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir hávaða og dýraeigendur að dýrum sínum. Sum dýr geta orðið hrædd þegar flugeldar eru sprengdir í borginni. Æskilegt er að safnast saman fjarri húsum og sprengja á opnum svæðum. Fólk sem er viðkvæmt fyrir svifryki og hávaða ætti að vera inni þegar mest gengur á um miðnætti og loka gluggum.BrennurSöfnun í þær tíu áramótabrennur sem verða í Reykjavík hófst 29. desember og kemur efnið meðal annars frá fyrirtækjum. Einungis hreint timbur má fara á brennurnar og er bannað að setja þar unnið timbur, plast og gúmmí. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur eftirlit með brennunum ásamt Lögreglunni og Slökkviliðinu á Höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur jafnframt eftirlit með hreinsun á brennustað.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Fleiri fréttir „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Sjá meira