Herinn býður til borðs á Tapashúsinu í kvöld Heimir Már Pétursson skrifar 24. desember 2014 13:16
Um 130 manns koma í mat á aðfangadagskvöld hjá Hjálpræðishernum sem að þessu sinni býður fólki út að borða á veitingastað við Reykjavíkurhöfn, eins og Heimir Már komst að í morgun. Hjálpræðisherinn hefur í áratugi boðið fólki í mat til sín klukkan sex á aðfangadag. En í þetta skipti verður breyting á því boðið verður í Tapashúsinu við Reykjavíkurhöfn. Já, þau Hjördís, Ben Elí og Dorthea voru mætt í morgun til að udnirbúa jólaboðið í kvöld ásamt Gunnari veitingamanni.Þið eruð á Tapashúsinu að þessu sinni, hvers vegna?„Það er vegna þess að við höfum verið að bjóða upp á jólamatinn niðri í Hjálpræðisher í Krikjustræti. En þar er svolítið þröngt. Við erum mörg. Það eru 130 manns sem ætla að vera hér saman á jólunum í kvöld. Þannig að aðstaðan bauð kannski ekki upp á það. Þetta eru þröngir og litlir gangar og kjallari og allt þetta. Hann Gunnar sem er eigandi hér bauð okkur að vera hér á jólunum og halda jólahátíð fyrir fólkið okkar,“ segir Hjördís. Það þarf mikinn mat fyrir 130 manns og því hefst undirbúningurinn snemma en Hjördís segir Herinn svo lánsaman að eiga að mikinn fjölda sjálfboðaliða sem leggja hönd á plóg, sennuilega um 40 manns. „Og það koma hingað kokkar og elda fyrir okkur og svo erum við með fjöldann allan af fólki sem kemur til að bera þetta fram og gera þetta að sem eftirminnilegustum og bestum tíma fyrir fólkið sem kemur,“ segir Hjördís. Það sé alls konar fólk koma í mat hjá Hjálpræðishernum um hver jól. „Fólk sem við höfum kannski ekki endilega hitt. Þetta er auðvitað fólkið okkar af dagsetrinu og svo er þetta líka bara fólk sem er kannski ekki með börnin sín um jólin eða hafði engan til að vera með, fólk sem hefur misst maka sinn eða eitthvað svoleiðis. Þannig að þetta er ekki endilega eitthvað ógæfufólk. Þetta er bara fólk sem vill ekki vera eitt um jólin,“ segir Hjördís. Boðið verður upp á súpu í forrétt og lamalæri í aðalrétt og svo auðvitð ís á eftitr en allt þetta er kostað með söfnunarfé og gjöfum frá fyrirtækjum.Og það verður ekki bara borðað, það verður sungið líka? „Jú, jú, við ætlum að borða hér og fá góðan eftirrétt og svona. Síðan ætlum við að færa okkur niður á Her og þar verður að sjálfsögðu dansað í kringum jólatréð og allir fá jólapakka, heitt súkkulaði og konfekt,“ segir Hjördís Kristinsdóttir á Hjálpræðishernum.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira