Brotist inn hjá Fjölskylduhjálp: „Þetta er bara alveg skelfilegt“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. desember 2014 15:16 Brotin var rúða í forstofu húsnæðis Fjölskylduhjálpar við Iðufell. Vísir/Andri Marinó
Brotist var inn í húsnæði Fjölskylduhjálpar við Iðufella síðastliðna nótt. „Þetta er bara alveg skelfilegt og ég skil ekki hvað fólki gengur til. Það er virkilega sárt að það sé ráðist svona á þetta þar sem þetta er góðgerðarstarfsemi,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar. „Ég var hérna í gær og þá var allt með felldu en svo kem ég hingað í dag því við erum með neyðarúthlutun og þá er búið að brjóta tvöfalt gler sem er hér í verksmiðjugámi sem við höfum undir kertaframleiðslu. Svo var líka búið að brjóta gler í rúðu í forstofunni,“ segir Ásgerður. Reitir eiga húsnæðið og gámurinn er í eigu Gámaþjónustunnar. Engu var stolið þar sem þjófarnir komust ekki inn í húsnæðið sjálft en tjónið er engu að síður mikið. Ásgerður segir þetta vera í 4. skiptið bara núna í desember sem reynt er að brjótast inn í húsnæði Fjölskylduhjálpar. „Ég vil þó sérstaklega taka það fram að ég vil alls ekki skrifa þetta á unglinga hér í Breiðholti þar sem við höfum orðið vör við að hingað í hverfið koma krakkar af öllu höfuðborgarsvæðinu,“ segir Ásgerður. Hún biðlar til þeirra sem gætu hafa orðið varir við eitthvað við Iðufell að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.Brotinn var gluggi á gámi þar sem kertaframleiðsla fyrir Fjölskylduhjálp fer fram.Vísir/Andri MarinóKveikt í bíl kertagerðarmeistarans Þá var kveikt í bíl kertagerðarmeistara Fjölskylduhjálparinnar í liðinni viku en hann stóð fyrir utan húsnæðið í Iðufelli yfir nótt. „Bíllinn er gjörónýtur,“ segir Jón Elíasson, kertagerðarmeistari. Hann segir ekki vita hverjir hafi verið að verki þar sem engin vitni voru að atburðinum og engar myndavélar í kring. Draga þurfti bílinn í burtu þar sem hann var óökuhæfur enda brann allt inni í honum.Engu var stolið en tjónið er engu að síður mikið.Vísir/Andri Marinó
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Sjá meira