Rekstur dagforeldris rjúkandi rúst eftir tilhæfulausan grun um ofbeldi Jakob Bjarnar skrifar 11. desember 2014 11:36 Börnin nutu vafans, og er málinu lokið hvað Hafnarfjarðarbæ varðar en eftir stendur að reksturinn er rjúkandi rúst.
Í kjölfar þess að mar fannst á barni sem var í gæslu dagforeldris í Hafnarfirði, sem ekki vill láta nafns síns getið, voru öll börn tekin úr gæslu þess. Eftir rannsókn Barnaverndarnefndar kom í ljós að barnið hafði ekki hlotið mar vegna harðræðis hjá dagforeldrinu og var málið látið niður falla. Eftir situr dagforeldrið hins vegar með sárt ennið og reksturinn rjúkandi rúst, foreldrar treysta því ekki og börnunum var fundið pláss á leikskólum bæjarins. Fjölmiðillinn Gaflari.is greinir ítarlega frá málinu; eftir sjö ára flekklausan feril situr dagforeldri uppi án barna eftir að þau voru tekin fyrirvarlaust úr umsjón þess. „Eftir að barnið var sótt á föstudegi fannst mar á því,“ hefur Gaflari eftir viðkomandi: „Barnið var 10 mánaða og farið að standa upp og ganga meðfram en ég varð ekki vör við að neitt óvenjulegt kæmi fyrir það á meðan það var hjá mér.“ Foreldrarnir ákváðu hins vegar að fara með barnið til læknis og í kjölfarið var barnaverndarnefnd tilkynnt um málið. Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, segir að börnin hafi notið vafans á meðan könnuninni stóð. Þegar Gaflari spurði Steinunni hvort eðlilegt geti talist að dagforeldrið sé æru- og atvinnulaust í kjölfar skoðunar hjá Barnarverndarnefnd, sem gerði svo enga athugasemd við störf þess segir hún: “Málinu er lokið af okkar hálfu. Börnunum var komið fyrir á leikskólum vegna þess að fyrir lá að dagforeldrið væri að hætta á næstu mánuðum en ekki vegna þess að það var brotlegt í starfi.“
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira