Sakar Guðlaug Þór um að vera skoðanabróðir Steingríms J. Jakob Bjarnar skrifar 11. desember 2014 14:28 Vík milli vina. Samkvæmt Valhallarlógíunni er vart hægt að hugsa sér meiri svívirðingar en einmitt þær að líkja einhverjum við Steingrím J. eða vitna í hann. Ingvi Hrafn vænir Guðlaug Þór um einmitt það.
Vík virðist milli vina og bræðra í Sjálfstæðisflokknum en þrætueplið er RÚV ohf. Ingvi Hrafn Óskarsson, stjórnaformaður RÚV og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn, sendir Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, harðar glósur í grein í Morgunblaðinu í morgun. Þessi skrif hans hafa vakið nokkra athygli. Undirliggjandi þræta er snúin en Guðlaugur Þór Þórðarson hefur undanfarna daga kvartað undan því sem hann segir rangfærslur fréttastofu RÚV ohf., þá er snúa að staðhæfingum hans um framlag ríkisins til þessa ríkisfjölmiðils. Vinir Guðlaugs Þórs á Facebook héldu að botn væri kominn í málið, þegar þingmaðurinn tilkynnti að gott væri „hjá fréttastjóra RÚV að leiðrétta fréttina.“ Og hann vísar í nýja frétt RÚV þar sem segir: „Árið 2010 var innheimtan hins vegar 213 milljónum króna hærri en framlagið til RÚV. Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður hefur réttilega bent á að árin 2009 og 2010 hafi RÚV í raun fengið samtals 160 milljónir króna umfram það sem á endanum innheimtist af útvarpsgjaldi og því fengið framlag sem nemur útvarpsgjaldinu og gott betur.“Guðlaugur verði að sætta sig við ábendingar um útúrsnúning Hins vegar er hætt við að þeir sem lásu Morgunblaðið hafi aðra mynd af þessu en þingmaðurinn. Þar er nefnilega grein eftir Ingva Hrafn undir fyrirsögninni „Rökþrot þingmanns“. Þar heldur Ingvi Hrafn því fram að Guðlaugur Þór hafi að undanförnu sett fram hæpnar fullyrðingar um fjármál Ríkisútvarpsins og meðal annars borið brigður á þá kunnu staðreynd, sem greint var frá í fréttatíma Ríkisútvarpsins, að Alþingi hefur jafnan ákveðið í fjárlögum að Ríkisútvarpið fái ekki útvarpsgjaldið óskert. Taldi fréttastofa Ríkisútvarpsins óhjákvæmilegt að árétta frétt sína um útvarpsgjaldið af þessu tilefni. Ingvi Hafn segir Guðlaug telja sig greinilega „hafa fengið hirtingu sem undan svíður og krefst nú afsökunar frá Ríkisútvarpinu. Vandinn er hins vegar sá að á undanförnum vikum hefur Guðlaugur ítrekað farið með staðlausa stafi um fjármál Ríkisútvarpsins og beitt fyrir sig útúrsnúningum sem hvergi snerta kjarna málsins. Hann verður að sætta sig við að á það sé bent.“ Bréf Ingva Hrafns er harkalegt og hann talar um talnaleikfimi Guðlaugs og þar sem þingmaðurinn „burðast við að reikna út“ hver fjárframlögin eru og einkennilegast sé að Guðlaugur Þór bregðist ekki við með því að leggja fram upplýsingar úr fjárlögum heldur kveður hann Steingrím J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra til vitnis í málinu.Síðasta hálmstráið Vart er hægt að hugsa sér meiri móðgun innan Sjálfstæðisflokksins en væna viðkomandi um að vera skoðanabróðir Steingríms, nema ef vera kynni Ögmundar Jónassonar þingmanns VG, en haft hefur verið eftir einmitt Guðlaugi Þór að Ögmundur sé sinn pólitíski áttaviti: Ef hann vísi í norður sé rétt að fara í suður. „Það skyldi þó ekki vera að Guðlaugur grípi þetta síðasta hálmstrá þegar rökþrot blasir við?“ spyr Ingvi Hrafn í lok síns pistils. Nú bíða menn viðbragða Guðlaugs Þórs en þetta harkalega bréf Ingva Hrafns má vera til marks um að málefni Ríkisútvarpsins séu að reynast Sjálfstæðisflokknum erfið.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Fleiri fréttir Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Sjá meira