Togarar sigla undan dökkrauðri ölduspá Kristján Már Unnarsson skrifar 14. desember 2014 09:00 Spá um hættulegar öldur kl. 18 í kvöld. Dökkrauður litur táknar hæsta mögulega skala, yfir 12 metra ölduhæð. Kort/Vegagerðin.
Búist er við ofsaveðri, meðalvindi meira en 28 metrum á sekúndu, um landið austanvert í dag, og stormi um mestallt land. Þannig hljóðar stormviðvörun Veðurstofunnar. Verst er spáin fyrir fiskimiðin úti fyrir Norðaustur- og Austurlandi. Sjóveðurspáin hljóðar upp á norðan og síðan norðvestan 25-32 metra á sekúndu fyrir Norðausturmið og Austfjarðamið en allra verst er spáin fyrir Austurdjúp, norðvestan 28-35 metrar eftir hádegi.Togarinn Gullver frá Seyðisfirði er meðal þeirra sem voru á siglingu til lands í morgun.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.Ölduspáin á heimasíðu Vegagerðarinnar sýnir vel ofsann sem spáð er. Spáin klukkan 18 í kvöld er eldrauð, í hæsta mögulega skala, fyrir miðin úti fyrir Norðaustur- og Austurlandi. Það þýðir yfir 12 metra ölduhæð, eða öldur hærri en fjögurra hæða íbúðarhús. Á siglingavefnum Marine traffic mátti sjá þrjá togara á Austfjarðamiðum í morgun, Ljósafell SU, Sigurbjörgu ÓF og Gullver NS, en þeir voru allir á siglingu í átt til Austfjarðahafna. Ljósafell stefndi til Fáskrúðsfjarðar, Sigurbjörg til Reyðarfjarðar og Gullver til Seyðisfjarðar, sem var lengst úti skipanna kl. 9 í morgun, - átti þá eftir um 30 sjómílna siglingu til Seyðisfjarðar. Þá var Bjartur NK rétt ókominn inn á Norðfjörð. Einn smábátur var á sjó við austurströndina, Gísli Súrsson GK, út af Stöðvarfirði.Ölduspáin kl. 12 á hádegi. Ofsaveðrið verður þá við norðausturhornið og ekki komið á Austfjarðamið.Kort/Vegagerðin.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira