Innlent

Á slysadeild eftir bruna í Gnoðarvogi

Mikill eldur kom upp í kjallaraíbúð fjölbýlishúss  við Gnoðavog í Reykjavík upp úr klukkan þrjú í nótt. Íbúi þar var fluttur á slysadeild Landsspítalans vegna gruns um reykeitrun og er fréttastofu ekki nánar kunnugt um líðan hans. Slökkvistarf gekk vel en reykur barst inn í nálægar íbúðir og þurfti að reykræsta þær, en íbúar ákváðu að gista annarsstaðar í nótt. Eldsupptök eru ókunn.

Þá kviknaði eldur í byggingarefni í nýbyggingu  í grennd við Skipalón í Hafnarfirði laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Slökkvistarf gekk vel og engin hætta skapaðist þar sem engin er fluttur inn í húsið. Grunur leikur á að þarna hafi verið kveikt í en engin sérstakur liggur undir grun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×