Reynslubolti á spítalanum hendir inn handklæðinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. desember 2014 09:36 „Ákvörðunin var afar erfið en ástæða uppsagnar minnar er augljós þeim sem til þekkja,“ segir Einar Páll. Vísir/Vilhelm „
Mér er því miður fullkomlega ljóst að Landspítalinn og heilbrigðiskerfið allt er að holast innan frá og molnar nú hugsanlega niður með uppsögnum þeirra sem sjá að ekki verður lengur við ástandið unað,“ segir svæfingarlæknirinn Einar Páll Indriðason sem sagði upp störfum á Landspítalanum í morgun. „Já, ég sagði upp í dag,“ segir Einar Páll í samtali við Vísi. Hann hefur starfað sem svæfingar- og gjörgæslulæknir á Landspítalanum í Fossvogi frá því árið 2001. Í morgun var hans fyrsta verk að afhenda yfirmanni sínum uppsagnarbréf. „Maður hefur velt þessu mikið fyrir sér og það er auðvitað með mjög miklum trega sem maður hættir,“ segir Einar. Honum þyki vænt um vinnustað sinn og elski vinnuna. „Ákvörðunin var afar erfið en ástæða uppsagnar minnar er augljós þeim sem til þekkja. Ofan á sífelldar og óraunhæfar sparnaðarkröfur yfirvalda hafa laun okkar lækna á Landspítalanum ekki hækkað sem skildi og því tel ég mig ekki geta unnið á þeim töxtum sem þar bjóðast. Að auki fást læknar ekki heim úr sérnámi enda launin hér ekki samkeppnishæf.“Eðlileg launaleiðrétting lækna Hávær orðrómur hefur verið undanfarnar vikur að fleiri svæfingarlæknar á Landspítalanum íhugi alvarlega að segja upp. „Ég vil helst ekki tjá mig um hvað aðrir eru að hugsa. Þetta er mitt mál og mín ákvörðun,“ segir Einar en kona hans starfar einnig sem læknir. Vel komi til greina að flytja utan en það ætli hann ekki að íhuga af alvöru fyrr en eftir jól. „Nú þegar við læknar förum fram á eðlilega launaleiðréttingu fáum við ekki samningsaðilann að borðinu með umboð til þess að semja á raunhæfum nótum. Það er því útlit fyrir að ekki náist fram eðlileg endurnýjun stétt okkar,“ segir Einar í Facebook-færslu til vina og vandamanna í dag. Einar er á þriggja mánaða uppsagnafresti og verður uppsögnin því að veruleika þegar verkfallsaðgerðum lækna lýkur að óbreyttu í mars.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira